Búnaðarrit - 01.01.1972, Blaðsíða 84
78
BÚNAÐARRIT
Nautgripasœ&ingar. í starfsskýrslu Diðriks Jóhanns-
sonar er skýrt frá nautgripasæðingum á öllu landinu
árið 1971 nema á Suðurlandi og í Kjalarnesþingi, þar
sem ferskt sæði var notað allt árið. Samkvæmt bráða-
birgðatalningu voru sæddar 1. sæðingu á Suðurlandi
12.118 kýr og 496 í Kjalamesþingi, en frá dreifingar-
stöðvum, er nota djúpfryst sæði frá Nautastöð félagsins
17.163 kýr. Alls voru því sæddar á öllu landinu sem
næst 29.777 kýr, sem svarar til 75,4% af tölu kúa og
kelfdra kvígna. Nam sú aukning 6,1 bundraðshluta ein-
ingum. Hefur hlutfallstala sæddra kúa ekki orðið svo
há áður.
Á árinu var lokið að greiða stofnframlag til 5 dreif-
ingarstöðva, þ. e. fyrir A.-Barðastrandarsýslu, Y.-Barða-
strandarsýslu, N.-Þingeyjarsýslu, Norðfjarðarsvæði og til
viðbótarstöðvar S. N. E. fyrir Eyjafjörð austanverðan.
Um starfsemi dreifingarstöðvanna, sem nota djúpfryst
nautasæði, vísast til skýrslu Diðriks Jóhannssonar, þar
sem einnig er skýrt frá nautalialdi og útsendu sæði úr
hverju nauti á Nautastöðinni við Hvanneyri á árinu 1971.
Frá kynbótastöðinni í Laugardælum voru árið 1970
sæddar alls 12652 kýr. Þar af voru sæddar 1. sæðingu
á árinu 12297 kýr, en uppbeiðsli frá fyrra ári voru 355.
Við sæðingu festu fang 12206 kýr, en 446 héldu ekki, og
voru 318 þeirra færðar til næsta árs. Var því 128 kúm
ýmist haldið undir naut eða þær felldar kálflausar. Við
1. sæðingu festu fang 66,8% af kúnum, og var fjöldi
sæðinga á kelfda kú 1,56. Viðskiptamenn (bú) voru 745.
Samsvarandi tölur frá dreifingarstöð Bsb. Knþ. að Lága-
felli, sem skipti við Kynbótastöðina í Laugardælum, voru
572 kýr sæddar, þar af 537 nýjar á árinu, en uppbeiðsli
35. Fang festu við sæðingu 553, en 19 voru fluttar til
næsta árs. Við 1. sæðingu héldu 65,0% af kúnum, en
sæðingar á kelfda kú voru 1,54. Fjöldi viðskiptamanna
var 80.
Frá dreifingarstöðvunum, er skiptu við Nautastöð Bún-