Búnaðarrit - 01.01.1972, Blaðsíða 142
136
BÚNAÐARRIT
ÍJtlendingar hafa leitað talsvert til stofunnar. Kvöðum
þeirra liefur lítið verið sinnt nema í nokkrum svarbréf-
um. Flestir, sem til hennar leita, er ungt fólk í ævintýra-
leit, mállaust og fákunnandi til starfa. Það lætur oft í
það skína, að hér eigi það drýgri von fjármuna, en lík-
legt er að rætist.
463 bændur leituðu til stofunnar. Þeir báðu um 145
karla 16 ára og eldri og 169 konur á sama aldri, þar af
71 ráðskonu, 172 drengi 15 ára og yngri og 23 telpur.
Til stofunnar leituðu 197 karlar og 210 konur 16 ára og
eldri og 345 drengir og 150 telpur 15 ára og yngri.
Þess er enginn kostur að slá neinu föstu um, hversu
vistarmálin liafa ráðizt. Bregðast mjög margir gefnum
loforðum um að tilkynna þær málalyktir. Má ekki á
milli sjá, hvorir gleymnari eru á þau loforð, bændur eða
þeir, er vinnunnar óska.
Böm, sem leituðu til stofunnar, urðu nokkm fleiri en
1970. Hve mörg réðuzt er óvíst, enda er gleymskan líka
með í spilinu þar. Hitt er víst, að þeim börnum fjölgar
ekki sem nemur, er ráðast á hennar vegum. En þess ber
að gæta, að minnstur hluti þeirra bama, sem ráðast til
sveitastarfa, leita til ráðningarstofunnar. Er livort tveggja
að furðu margar leiðir frændsemi og vináttu em þar
þekktar og opnar, enda kemur nágrenni margra þéttbýlis-
hverfa þar til liðsinnis.
21 erlendu bréfi var svarað. Þau reit Ingólfur öll.
Ég fylgdi norður-þingeyzkum bændum og konum
þeirra um Norðurland, Dali, Snæfellsnes, Borgarfjörð
og Kjósarsýslu til Reykjavíkur, svo til baka um Skaga-
fjörð, Fljót, ólafsfjörð, Svarfaðardal til Akureyrar. Þar
skildu leiðir, og hélt hver til síns heima þaðan. Varð
förin mér til óblandinnar gleði, og sendi ferðafélögun-
um heils hugar þakkir.
Gutímundur Jósafatsson.