Búnaðarrit - 01.01.1972, Síða 348
342
BÚNAÐARRIT
Á liéraðssýningu mættu Móri Júlíusar í Norðurlijáleigu,
er lilaut þar 8. sæti I. heiðursverðlauna hrúta með 80,5
stig, Þór Þorbergs í Hraunbæ, er hlaut I. verðlaun A, og
Njáll Hilmars á Þykkvabæjarklaustri, sem hlaut I. verð-
laun B. Birkir Júlíusar, veturgamall, var einnig valinn
á sýninguna, en mætti ekki, og kom Móri inn í hans stað,
Ófeigur Þorbergs í Hraunbæ, veturgamall, sonur Vins
í Laugardælum, var valinn sem annar varalirútur á hér-
aðssýningu.
Skaftártunguhreppur. Hrútarnir voru mim þyngri en
jafnaldrar þeirra 1967, þeir veturgömlu nú 10,4 kg þyngri
og röðun allmiklu betri. Á héraðssýningu voru valdir
Stubbur Guðjóns í Hlíð, Pjakkur Svansson Sæmundar
í Múla, ættaður frá Úthlíð, Kollur Guðnýjar í Ytri-Ásum,
Þröstur Svansson, veturgamall, Sveins í Flögu, fæddur
að Úthlíð og Bjartur Svansson Gísla í Flögu frá Úthlíð.
Til vara voru valdir á héraðssýningu Ófeigur Guðjóns
í Hemru og Púði Jóns í Svínadal, ættaður frá Úthlíð.
Stubbur, Pjakkur og Kollur hlutu þar I. verðlaun A,
Þröstur og Bjartur I. verðlaun B. Af kollóttum lirútum
veturgömlum var Sókrates Svansson Vals í Úthlíð talinn
annar beztur á eftir Þresti bróður sínum á hreppasýn-
ingunni, en af hyrndum voru beztir Kúskur Sómason í
Útlilíð, Spakur Sæmundar í Múla, sonur Dals í Laugar-
dælum, og Goði Sigurjóns á Borgarfelli, sonur Lítilláts
sæðisgjafa í Laugardælum, Askur Sómason Vals í Úthlíð
var beztur af tvævetrum hrútum. Fjölmargir lirútar í
Skaftártungu eiga uppruna eða ættir að rekja að Úthlíð,
þar er Svanur 3 traustur og farsæll hrútafaðir, eins og sést
af framanskráðu.
Kirkjubœjarhreppur. Veturgamlir hrútar voru um 8
kg þyngri en jafnaldrar þeirra 1967, og röðun lirúta nú
betri. Á héraðssýningu voru valdir eftirtaldir lirútar:
Stúfur, Trítill, B asi, Lokkur og Kunningi, veturgamall,
Jóns í Seglbúðum, Ljúfur, veturgamall, Guðmundar á
Eystra-Hrauni, Móri Sigurðar á Ytra-Hrauni, ættaður