Búnaðarrit - 01.01.1984, Blaðsíða 77
SKÝRSLU R STARFSMANNA
49
þingstíöindi undir prentun í samráði við búnaðarmála-
stjóra. Var þingið annasamt, enda lögð fyrir það fleiri mál
en nokkru sinni fyrr, síðan það fór að koma saman árlega
fyrir aldarþriðjungi.
Ferðalög voru minni en nokkru sinni áður. Ég sat þó
aðalfund Nsb. Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýslu að Selja-
landi 22. marz ásamt fleiri aðkomumönnum. Ræddi ég þar
um kjötsýninguna, sem áður er getið, en Halldór Eiðsson
sýndi línurit um brjóstmál og þunga gripanna á sýningunni.
Ég fór tvisvar til Hríseyjar á árinu til að skoða gripi þar og
lýsa þeim og ákveða, hvaða naut skyldu notuð til sæðinga í
landi. Fyrri ferðin var farin 1. og 2. febrúar og hin síðari 9.
ágúst, en þá var ég staddur nyrðra í öðrum erindagjörðum.
Nefndarstörf. í síðustu starfsskýrslu minni greindi ég frá
víðtækum viðræðum og undirbúningi rannsókna, er nefnd
um ófrjósemi í nautgripum stóð að. Varð úr, að Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins tók verkefni þetta á
rannsóknaskrá á árinu 1983, og er áætlað lokaár þess 1986.
Rannsóknirnar framkvæmir Þorsteinn Ólafsson, dýra-
læknir, í samvinnu við Tilraunastöðina á Keldum, Búnaðar-
félag íslands og búnaðarsamböndin á Suðurlandi og í Eyja-
firði.
Nefnd til að endurskoða reglugerð um kjötmat. í síðustu
starfsskýrslu gerði ég grein fyrir þessari nefnd, sem ég á sæti
í og skipuð var 26. ágúst 1982. Nefndin hafði haldið eina 14
fundi og talað við fjölmarga aðila, er hlé var gert á störfum
hennar s. 1. vor. Hún hefur starfað hægar það, sem af er
vetri, enda beðið niðurstaðna ýmissa athugana, sem hún
stendur að. Eins og getið er hér að framan, stóð hún fyrir
merkri sýningu á nautakjöti af völdum gripum í febrúar.
Var sýningin ágætlega sótt og hlaut verðskuldaða athygli og
mæltist vel fyrir. Halldór Eiðsson, sem ásamt öðrum vann
að undirbúningi sýningarinnar, hefur aflað fróðlegra, en
ósamstæðra gagna um stóran hóp ungneyta, sem slátrað var
á Suðurlandi, og unnið úr þeim gögnum fyrir nefndina, en