Búnaðarrit - 01.01.1984, Blaðsíða 80
52
BÚNAÐARRIT
ákveða dagskrárefni og ræða tilhögun mótsins. Hefur
Agnar Guðnason, blaðafulltrúi, tekið að sér framkvæmda-
stjórn þess fyrir Islandsdeildina. Stjórnin fór að Laugar-
vatni til að athuga aðstöðu, sem mönnum leizt vel á. Mótið
hefst að morgni 15. júlí og stendur til 18. s. m., en þann dag
verður farið um Suðurland. Eftir það verður efnt til
ferðalaga víðar um landið, ef næg þátttaka fæst. Undirbún-
ingur mótsins er hafinn.
Stjórn íslandsdeildar N0K sat stjórnarfund N0K að
nokkru leyti og var með í ferðinni austur. Aðalfundur
deildarinnar var haldinn í Reykjavík 22. október, og var hið
fyrirhugaða mót aðalefnið. Var stjórnin endurkjörin. í
henni eru Bragi Líndal Ólafsson, Páll Lýðsson og undirrit-
aður, sem er formaður. í stjórn N0K eru Bengt Jensen frá
Danmörku, Arne Roos frá Svíþjóð, Harry Engberg frá
Finnlandi, Svein Overskott frá Noregi og Jón Viðar Jón-
mundsson og undirritaður (formaður) frá íslandi. Ritari er
Arne Nielsen frá Danmörku.
Búfjárrœktarnefnd NBC. Samstarfsnefnd milli N0K og
NBC um þessi mál var komið á að tilhlutan N0K fyrir
nokkrum árum, og eru tveir fulltrúar frá hverju landi.
Akveðið hefur verið, að bændasamtökin hér taki þátt í
þessu samstarfi, og tilnefndi stjórn Búnaðarfélags íslands
mig af sinni hálfu í nefndina.
Rannsóknaráð ríkisins. Frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. 64 1965 um rannsóknir í þágu atvinnuveganna og
tillögur að frumvarpi til laga um Vísindaráð ríkisins hafa
verið til kynningar og umræðu á fundum Rannsóknaráðs
um skeið, síðast 18. nóvember, en þann fund sat varamaður
minn, dr. Ólafur R. Dýrmundsson, í fjarveru minni. Hér er
um veigamiklar breytingar að ræða. Óskaði menntamála-
ráðherra eftir því á þeim fundi, að þeir, sem sæti eiga í
ráðinu, kæmu athugasemdum á framfæri við ráðuneytið, ef
þeir hefðu einhverjar fram að færa. Við Ólafur bentum á
nokkur atriði til breytingar í bréfi, dags. 15. des. s. 1., eftir