Búnaðarrit - 01.01.1997, Page 51
BÚNAÐARRIT 1 997
Mynd 13. Fjöldi hrossa 1993-1997
Heimild: Hagstofa Islands.
árinu 1997 hafin gagnger endurhönnun á
tölvukerfinu Feng. Nýtt forrit, fslands-
Fengur, mun leysa Feng af hólmi og verður
það með víðfeðmari möguleika varðandi
skráningu, gagnavörslu og úrvinnslu, auk
þess að vera notendavænna (Windows
umhverfi). 1 október 1997 var núverandi
Einka-Fengur settur á veraldarvefinn og
slóðin er www.bondi.is. 1 framhaldinu mun
fslands-Fengur fara á veraldarvefinn, en í
honum mun m.a. verða birt myndasafn BÍ
af kynbótahrossum sem í eru yfir 3 þúsund
myndir.
Fjórðungsmót var haldið á Kaldármelum
í Snæfellsnessýslu 26. til 29. júní. Þátttaka
var mikil í forskoðun íyrir mótið og
heppnaðist kynbótaþáttur fjórðungsmótsins
með ágæturn. Þátttaka í sýningahaldinu í
heild sinni á landinu var góð, einkum þó
sunnanlands og vestan. Alls voru upp-
kveðnir 1438 dómar, þar af voru 1236
fullnaðardómar (dæmt hæði sköpulag og
kostir), 193 sköpulagsdómar og 9 ungfolar
hlutu formlega umsögn. Fjöldi dæmdra
hrossa var í heild 1295 hross; 277 stóðhestar
(tveggja vetra og eldri), 970 hryssur (fjög-
urra vetra og eldri) og 48 geldingar.
Sýningar hér á landi voru 22 og var
útkoma sýningahaldsins í heild sinni góð.
Tölfræðileg gæði dómanna í ár voru mikil
og mun meiri en árið 1996. Góð teygni
náðist fram sem tryggir öðru fremur hátt
arfgengi, en það er lykilatriði til að ná fram
kynbótaframför. Nýjar niðurstöður rann-
sóknar á þessum atriðum hérlendis voru
birtar á árinu og voru niðurstöðurnar eins
og best verður á kosið. Staða íslenskrar
hrossaræktar er sterk á alþjóðlegum vett-
vangi um þessar mundir eins og best sýndi
sig á heimsmeistaramótinu í Noregi. Á árinu
stóðu Bændasamtökin að réttindanámskeiði
fyrir erlenda kynbótadómara í samstarfi við
FEIF og Bændaskólann á Flólum.
Framleiðsla og sala
Árið 1977 voru flutt út 2.499 hross, samtals
að verðmæti kr. 211 millj. fob. Alls voru
flutt út lífhross til 16 landa, þar af flest til
Þýskalands, 841, að verðmæti 65,7 millj. kr.
fob. Tafla 37 sýnir útflutning lífhross árið
1997 eftir löndum.
Tafla 37. Útflutningur á lífhrossum 1997
Fjöldi Verðmæti,
þús. kr. fob
Þýskaland 841 65.670
Svíþjóð 669 64.243
Danmörk 211 15.969
Bandaríkin 214 14.077
Sviss 115 13.091
Noregur 146 10.568
Önnur lönd 303 27.354
Samtals 2.499 210.972
Heimild: Hagstofa Islands.
Skráð útflutningsverð á lífltrossum er
talið óeðlilega lágt. Samkvæmt verðmæta-
áætlun Framleiðsluráðs landbúnaðarins eru
útflutningsverðmæti lífhrossa talin kr. 449,8
millj. eða meira en tvöfalt meiri en versl-
unarskýrslur segja til um. Undanfarin ár
L
49