Heilbrigðismál - 01.07.1969, Page 22
HEILSUFARí
HEIMI MORGUNDAGSINS
frh. af bls. 16.
að hafa auga með þeim. Það fer ekki á milli mála,
að tæknin mun einnig valda byltingu í læknisfræð-
inni og á sjúkrahúsunum. Riifeindaheilar munu
mjög létta störf Iæknanna við að greina sjúkdóma
og gefa ráð við þeim. Læknarnir munu mata heil-
ann á því, sem þeir finna að sjúklingunum og heil-
inn mun skila þeim aftur lista yfir hugsanlegar sjúk-
dómsgreiningar. Allar nauðsynlegusm efnarann-
sóknir verða framkvæmdar með elektróniskum að-
ferðum og síðan birtar lækninum af rafeindaheila.
Hann mun einnig skrá sjúkrasögurnar og skjalfesta.
Sé rétt að öllu farið, verður útkoman ábyggileg, slétt
og felld án tímatafa, því rafeindaheilinn verður
aldrei þreytmr og missir aldrei þolinmæðina. Hann
getur létt af læknunum og hjúkrunarfólkinu miklu
af minniháttar fastastörfum og rannsóknum. Þetta
lækkar einnig kostnaðinn við læknishjálpina, meiri
tími verður afgangs til þess að rannsaka alvarleg til-
felli.
En þrátt fyrir allar þessar framfarir, má læknir-
inn aldrei gleyma að líta á sjúklinga sína sem mann-
legar verur. Á þessum vettvangi verður vélin ekki
annað en hjálpargagn og má aldrei verða það,
hvorki nú né á 21. öldinni. Hin geysilega fólks-
fjölgun morgundagsins mun valda mörgum þung-
um vanda, hvað snertir öflun matvæla. Fyrst af öllu
verður að leitast við að minnka bilið á milli fátækra
og ríkra landa. Spurningunni, hvort takast megi að
útrýma hungrinu, sem virðist nú teljast eðlilegt
ástand meðal % hluta mannkynsins, verður ekki
auðsvarað. Það verður að finna nýjar aðferðir, til
þess að framleiða egjahvíturíkar fæðutegundir í
stórum stíl sem verksmiðjuvarning. Nýjar og full-
komnari aðferðir við framleiðslu landbúnaðaraf-
urða verða að koma. Allskonar fordómar, afmrhald
og hindurvitni í þeim efnum, sem viðgengst og
hamlar eðlilegum framförum í sumum löndum,
verður að ryðja úr vegi, og síðast en ekki sízt verður
að vinna mikið og vel. Til þess þarf að auka fræðslu
á öllum sviðum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
mun nú sem fyrr veita mikla og ómetanlega þjón-
usm öllu mannkyninu til heilla, með því að fylgjast
með mikilvægum vandamálum og styðja að Iausn
þeirra. f þau 20 ár, sem hún hefur starfað, hefur hún
náð stórkostlegum árangri með framkvæmdum sín-
um um gjörvallan heim.