Heilbrigðismál - 01.01.1975, Page 12
við eftir flökkutauginni, til magans og valda
mikilli sýrumyndun.
Hverjir sem þeir kemisku og geðrænu or-
sakaþættir kunna að vera, sem eru að verki,
fer ekki hjá því að sýrurnar eru aðalorsök
sáramyndunarinnar. Þessi staðreynd varð
kveikja gamals læknisfræðilegs spakmælis:
An sýru ekkert sár. Ef læknirinn tekur á rétt-
an hátt sýni af magasafanum, með því að
nota granna slöngu, sem hann rennir niður í
magann, og finnur ekki aukna sýru, er það
fullkomið tilefni þess að efast um tilveru sárs.
En hvað þá ef röntgenmyndirnar sýna ójöfn-
ur, sem líkjast sári? Finnist engin sýra, verður
að gera ráð fyrir, að missmíði á skeifugörninni
sé annars eðlis: sveppæxli, samvextir eftir
skurðaðgerð, eða samvextir í vefjum, sem
liggja að henni, eins og gallblöðrunni og bris-
kirtlinum.
Komi eitthvað fram á röntgenmyndum,
sem líkist sári í maga sem er sýrulaus, verður
annað uppi á teningnum: Læknirinn verður
fyrst og fremst að láta sér detta krabbamein
í hug. Seinna ræðum við nánar um það mál.
Sjúklingurinn getur vel haft rökstuddan grun
um að hann sé með sár, áður en röntgen-
myndir eru teknar. Dæmigert einkenni er
sviðaverkur um bringspjalir 1—2 tímum eftir
morgunmáltíð dag hvern. Verkirnir minnka
líka eða hverfa eftir næstu máltíð og sjúkl-
ingurinn kemst brátt að raun um, að ef hann
drekkur mjólkurglas eða borðar eitthvað létt,
linast verkirnir. Algengast er að verkirnir
komi 2 tímum eftir máltíðir, en oft koma
þeir miklu fyrr. Sé um alvarleg sár að ræða,
getur verkurinn vakið sjúklinginn svo að
segja á sömu mínútunni allar nætur. Margir
sjúklingar með maga eða skeifugarnarsár,
gæta þess að hafa alltaf mjólkurglas hjá sér á
náttborðinu. Það tryggir rólegri svefn.
Þó undarlegt megi virðast, koma verkirn-
ir næstum aldrei þegar að morgninum. Þeir
koma ekki fyrri en nokkuð löngu eftir morg-
unmatinn. Enginn skilur hvað veldur þessu,
en flestir setja það í samband við vakasveifl-
ur (hormóna) fyrstu tíma dagsins.
Þó að sterkur grunur — svo að nálgast vissu
- sé um maga eða skeifugarnarsár, vegna ein-
kennanna, liggja 3 orsakir til þess, að nauð-
synlegt er að fá greininguna staðfesta með
röntgenskoðun og jafnvel magaspeglun til að
taka af allan vafa um sár.
1. Menn getaþjáðst af ýmsum öðrum melting-
arsjúkdómum en magasári, og án þess að
þeir séu í sambandi við sár. Miklu mein-
lausari kvillar eins og kviðslit, bólgur í
vélindinu, slímhimnubólgur í maganum
og krampasamdrættir í neðra magaopinu
FRÉTTABRÉF UM H EI LBRIGUISMAL
8