Heilbrigðismál - 01.01.1975, Page 18
Bjarna Bjarnason:
Greining magakrabba
á byrjunarstigi
Krabbamein er ekki eins algengt í neinu
líffæri meltingarfæranna og maganum.
í hugskoti alls almennings á sá, sem hefur
fengið magakrabbamein sér enga von. Lengst
af hefur það fundist svo seint, að dreifing til
annarra líffæra hefur þegar átt sér stað og
fullkomið brottnám með skurðaðgerð því ver-
ið iilkleift. Á seinni árum hefur tekist með
nýjum og bættum rannsóknaraðferðum að
finna svo skammt gengin krabbamein í mag-
anum, að þau hafa eingöngu verið í slímhúð-
inni — krabbamein á frumstigi - þessi frum-
stigskrabbamein er hægt að lækna með skurð-
aðgerðum. Samkvæmt víðtækum japönskum
rannsóknum tekst að lækna 90 af hundraði
þeirra. En hafi meinfrumurnar náð að vaxa
út fyrir slímhúðina, niður í dýpri lög maga-
veggjarins, eru horfurnar þegar miklu lakari.
Það er þessvegna mjög áríðandi, að greining
krabbameinsins eigi sér stað sem allra fyrst.
Greining krabbameins á frumstigi
Greining magakrabbameins á frumstigi er
ákaflega erfið, með venjulegum rannsóknar-
aðferðum. Frumstigið kemur í ljós, sem ör-
smátt þykkni í slímhúðinni, jafnvel 1-2 mm
í þvermál, eða örlítil dæld af álíka fyrirferð.
Oftast finnst þetta í slímhúð, sem áður hefur
tekið breytingum af langvinnum slímhúðar-
bólgum (gastritis atrophica), en meinið getur
einnig myndast í jaðri gamals magasárs. Frá
þessu frumstigi getur vöxturinn beinst út á
við, í dýptina eða inn í magaholið. Þegar
meinfrumur vaxa gegnum veggi blóðæða eða
sogæða geta þær flutzt til annara líffæra.
Erfitt er að gera sér grein fyrir byrjandi
krabbameini í maga af þeim einkennum,
sem sjúklingurinn hefur. Þau geta verið mjög
óákveðin eða því nær engin og fylgt hvaða
öðrum magasjúkdómi sem er. Margir hafa
engin einkenni af neinu tagi. Þetta hafa Jap-
anir sýnt fram á með fjöldarannsóknum sín-
um. En í sumum tilfellum kvarta sjúkling-
arnir um sviða, ógleði, verki í sambandi við
máltíðir, lélega matarlyst og slappleika. Þó
að blóðvottur finnist í saurnum, er það held-
ur ekkert óyggjandi einkenni, en þó vitanlega
merki, sem verður að gefa nánar gætur.
Venjuleg röntgenskoðun getur sjaldan leitt
í ljós smávægilegustu byrjunareinkenni, sem
lýst hefur verið.
Nú verður reynt að lýsa í stuttu máli þeim
aðferðum, sem átt hafa sinn þátt í bættri
greiningu á frumstigi meinanna. Þar koma
til skjalanna bein speglun á maganum (gas-
troscopi), og Ijósmyndun á slímhúðinni, sýnis-
taka (biopsi) og rannsókn á frumum, sem
losna frá hinum illkynja meinsemdum (cyto-
logi).
14
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL