Heilbrigðismál - 01.01.1975, Qupperneq 25

Heilbrigðismál - 01.01.1975, Qupperneq 25
Viðarkol gegn eitrunum Viðarkolasalli er mikilvægur sem skyndi- hjáip við eitrunum af arseniki, stryknini og steinolíu, of stórum skömmtum af svefnlyfj- um og ýmsum öðrum lyfjum. Hinsvegar hef- ur hann engin áhrif á áfengi, sýrur, lúta og önnur átueitur. Viðarkolasalli er fíngert svart duft, sem er bæði bragð og lyktarlaust. Það er gefið hrært út í vatni og verkun þess byggist á heildar- yfirborði kornanna. Sé það gefið áður en eitr- ið nær að komast úr maganum út í blóðrásina, getur það iðulega bundið það og á þann hátt gert svo mikið af því óskaðlegt, að hægt sé að bjarga sjúklingunum. Bj. Bj. þýddi Þungbærasta ákvörðunin Framh. af bls. 11. inn taki ákveðna afstöðu til þess, hvort líða eigi að öll læknishjálp við illa vansköpuð börn, skuli látin niður falla., Ennþá hefur engin málssókn verið hafin á hendur foreldr- um, sem hafa neitað að heimila slíka læknis- meðferð. Við það hefur setið, að hin þung- bæra ábyrgð hefur hvílt og hvílir enn á for- eldrum og læknum, hvort mjög vansköpuð börn eigi að njóta læknismeðferðar. Læknar á hinum stærri spítölum halda nú fundi með foreldrum vanskapaðs barns, eins fljótt og auðið er eftir fæðingu þess, til að ræða vandamál barsins. Þetta er gert til að skýra fyrir þeim hvað þeir eigi í vændum og verði að leggja á sig ef eigi að vernda líf barnsins. Þeir leitast líka við að gera sem heiðarlegast mat á hverskonar lífi viðleitni þeirra kunni að bjarga og gera foreldrunum það ljóst. Þrátt fyrir hið mikla áfall og vonbrigði, sem fylgja vansköpuðu barni, greiða flestir foreldrar lífinu ósjálfrátt atkvæði sitt og grát- bæna læknana um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að viðhalda því. Þetta kann þó stundum að breytast, með opinskárri og hreinskilnari umræðum um, hvort frekar beri að kjósa að barnið deyi en að dæma það ævi- langt til ómannúðlegrar hörmungatilveru. Bj. Bj. þýddi FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 21

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.