Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 4
BLADID OKKAR
Þess var minnsl fyrir einu ári að þá voru þrjátíu ár
liðin síðan fyrsla krabbameinsfélagið hér á landi var
stofnað. Þetta félag, Krabbameinsfélag Reykjavíkur,
kom ýmsu góðu til leiðar þegar á fyrsta starfsárinu. Á
stjórnarfundi I félaginu 15. nóvember 1949 var t.d. sam-
þykkt tillaga frá formanninum, Nielsi Dungal, að hefja
útgáfu tímarits er fjalla skyldi um heilbrigðismál al-
mennt en ekki síst frœða um krabbamein, enda var það í
samrœmi við lög félagsins. Samþykkt var að ritið skyldi
nefnasl „Fréttabréf um heilbrigðismál“. Fyrsta tölu-
blaðið kom út í desember 1949 en Krabbameinsfélag
íslands tók við blaðinu þegar það félag hafði verið
stofnað árið 1951.
Nú, þegar ful! þrjátíu ár eru liðin frá upphafi þessa
merka límarits, er rétt að staldra við og huga aðþví hvað
áunnist hefur.
Fréttabréf um heilbrigðismál náði þegar í upphafi
töluverðri útbreiðslu og ávann sér vinsœldir almennings.
Er það ekki síst að þakka fórnfúsu starfi Nielsar Dungal
sem var ritstjóri fyrstu átta árin. Þeir sem síðan hafa
ritstýrt blaðinu, Baldur Johnsen, Bjarni Bjarnason og
loks dr. Ólafur Bjarnason, núverandi ritstjóri, hafa allir
haldið merki Dungals hátt á loft. Hafa þeir bœði ritstýrt
blaðinu af dugnaði og ritað sjálfir fjölda greina.
1 fyrsta tölublaðinu árið 1949 var sagt að útgáfan vœri
„tilraun til að halda uppi heilbrigðisfrœðslu meðal al-
mennings" og að ekki vœri œtlunin „að binda sig við
krabbameinið eitt heldur fjalla um hvað eina sem varðar
heilbrigði þjóðarinnar. . . og benda mönnum á ýmislegt
sem skiptir máli fyrir heilsu þeirra sjálfra og barnanna
Þessum tilgangi hefur verið fylgt dyggilega og mun
Fréttabréf um heilbrigðismál vera eina tímaritið sem
lœtursig varða öllsvið heilbrigðismála. Jafnframt erþess
þó gœtt að í hverju blaði sé einhver fróðleikur um
krabbamein. Þessi fjölbreytni í efnisvali hefur átt ríkan
þátt I vinsceldum Fréttabréfsins og valdið þvi að stöðug
og jöfn aukning hefur orðið á áskrifendahópi sem gerir
það kleyft að vanda útgáfuna svo sem raun ber vitni. Nú
er svo komið að þetta blað Krabbameinsfélagsins er
orðið útbreiddasta heilbrigðistímaritið hérlendis, með
7.000 eintaka upplag, og hefur öðlast sess sem vandað og
virl rit sem oft er vitnað til.
Markmiðið með frœðslu um krabbamein hefur
einkum beinst að fyrirbyggjandi starfi. Leitarstöðvar-
starf hefur einkum eflst mikið af þess völdum og átt þátt í
því aðýmsar tegundir krabbameins greinast mun fyrr en
áður var. Upplýsingar um bœttan árangur Itafa enn-
fremur dregið verulega úr ólta manna við krabbamein
sem var einmitt mjög áberandi á þeim árum er krabba-
meinsfélögin hófu starfsemi sína.
Stjórn Krabbameinsfélags íslands tekur undir hug-
myndir ritstjóra og framkvœmdastjóra blaðsins um að
stefna beri að aukinni útbreiðslu blaðsins og að á nœstu
árum verði tölublöðunum fjölgað úr fjórum í sex árlega.
Á þessum tímamótum vil ég fyrir hönd stjórnarinnar
fœra þakkir ritstjórum og framkvœmdastjóra og öðrum
þeim sem greitt hafa götu blaðsins okkar undanfarin ár
og vœnti stuðnings heilbrigðisstétta og alls almennings í
viðleitni okkar aðgera veg Fréttabréfs um heilbrigðismál
sem mestan.
4 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980