Heilbrigðismál - 01.03.1980, Qupperneq 8
TÆ. ~EZ> i N G, A75.r>£ / LD
) LANjji
FITALANS
45 ^SuD ■ / (.V
Akveðiö hefur verið að leysa vanda
krabbameinslækninga til bráða-
birgða með því að innrétta aðstöðu á
neðstu hæð gömlu fæðingardeildar-
innar. Teikningin sýnir fyrirkomulag
þessarar aðstöðu. Þarna er gert ráð
fyrir göngudeild, húsnæði til „plön-
unar" (undirbúnings fyrir geisla-
meðferð) og einnig dagdeild sem
nýtt er að hluta í samvinnu við
kvennadeildina. Umrætt húsnæði
verður tekið í notkun síðar á þessu
ári að sögn Símonar Steingrímsson-
ar, tæknilegs framkvæmdastjóra
Ríkisspítalanna.
aukna áherslu á fyrirbyggjandi að-
gerðir í sjúkdómaleit og heilbrigð-
isfræðslu. I þessu sambandi vil ég
nefna það, að nú er að störfum
nefnd sem endurskoðar lög um
heilbrigðiseftirlit, um matvæla-
rannsóknir og um geislavarnir og
ég hef rætt um það við formann
nefndarinnar að áfengisvarnir og
reykingavarnir verði einnig þáttur í
hinni almennu hollustuvernd hér í
landinu. Ég vona að slík samstilling
kraftanna að heilsuvernd muni
skila betri árangri en stofnanir á víð
og dreif. 1 annan stað eigum við að
bæta heimilislæknaþjónustu. Við
eigum að reyna að koma í veg fyrir
að mannameinin verði svo alvarleg
að fólk þurfi að vistast á stofnunum
til lengri eða skemmri tíma.
Fræðsla um árangur sem
náðst hefur og um hvað
unnt er að gera
Með hliðsjón af ákvœði í mál-
efnasamningnum um notkun ríkis-
fjölmiðla til fullorðinsfrœðslu gœtir
þú þá stutt hugmyndir sem fram hafa
komið um að auka beri frœðslu um
heilbrigðismál á þessum vettvangi?
Jú, ég er sammála því að það
þyrfti að auka fræðslu um heil-
brigðismál og ekki aðeins um heil-
brigðismálin sem slík og það sem
þar vantar á til að okkar kerfi sé
fullkomnað, heldur þurfum við
líka að gera okkar þjóð grein fyrir
því sem þegar er gert I heilbrigðis-
málum á fslandi. Þar er unnið gíf-
urlegt starf af starfsliði heilbrigðis-
þjónustunnar, sjúkrahúsanna og
annarra stofnana á þessu sviði og
það er satt að segja hlálegt að hugsa
til þess að það hefur sáralítið verið
gert til þess að halda þessu mikla,
fórnfúsa og árangursríka starfi upp
í Ijósið. Við skulum gera okkur
grein fyrir því að þetta er mjög ár-
angursríkt starf. Það sést til dæmis á
því að íslendingar verða allra karla
og kerlinga elstir í heimi, barna-
dauði er minni hér en annars staðar
í heiminum. Menn eiga það til að
setja á langar ræður um eyðslu, só-
un og sukk í heilbrigðiskerfinu en
það vill gleymast það meginatriði
að hér er um að ræða starf sem
beinist að því að bœta mannamein
og bjarga mannslífum. Þeir hlutir
sem voru upphaflega og eru for-
senda heilbrigðiskerfisins eru
orðnir svo sjálfsagt mál í hugum
okkar margra að þeir hafa gleymst.
í stað þess að beina augum að að-
alatriðum þusa menn lon og don
um aukaatriði og á það jafnt við um
blöð, stjórnmálamenn og aðra sem
um þessi mál fjalla. Fyrir vikið
verður oft ákaflega erfitt að starfa í
þessari grein. Skilningsleysið ræður
ríkjum og þess vegna næst ekki sá
árangur sem annars næðist sem
væri miklu meiri en þó sá stórkost-
legi árangur sem íslenska heil-
brigðisþjónustan hefur náð á und-
8 Fréttabrél um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980