Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 10
sem við afgreiddum núna er gert
ráð fyrir 100 milljónum króna
vegna undirbúnings hugsanlegrar
K-byggingar á Landspítalalóðinni,
eins og ég sagði áður.
Skattheiintan endur-
skoðuð í heild
I blaðagrein var nýlega vakin at-
hvgli ú því að skatt- og tollheimta af
tcekjum til sjúkrahúsa vœri mun
meiri hér ú landi en þekktist i ná-
lœgum löndum. Verður þessu breytt
í tíð nýskipaðrar ríkisstjórnar?
I málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar er gert ráð fyrir því að fram
fari neildarendurskoðun á tekju-
öflunarkerfi ríkisins og ég tel sjálf-
sagt mál að skatt- og tollheimta af
tækjum til sjúkrahúsa verði tekin til
endurskoðunar jafnframt.
Heilsugæslumál Reykvík-
inga þokast áleiðis
Lög um heilbrigðisþjónustu geta
ekki komið til framkvæmda að öllu
leyti í Reykjavík og víðar meðal
annars vegna þess að húsnœði vant-
ur fyrir heilsugœslustöðvar. Verður
ráðin bót á þessu fljótlega?
Ég get ekki svarað því hvort
„fljótlega" verður ráðin bót á hús-
næðismálum fyrir heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík. Ég tel að hér sé
um að ræða víðtækara mál en
spurningin virðist gefa til kynna.
Ég hygg að vandamál heilbrigðis-
þjónustunnar í Reykjavík séu
stærri en víða annars staðar á
landinu. Þetta stafar af hinu mikla
fjölmenni sem hér er í Reykjavík og
þeirri staðreynd sem er I sjálfu sér
ósköp eðlileg að við höfum ekki
lært að búa í þéttbýli, en kunnum
tiltölulega vel að búa í slrjálbýli. Ég
held að stærsta vandamál heil-
brigðisþjónustunnar í Reykjavík sé
vandamál aldraðra.
Hinu er svo ekki að neita að ým-
iss konar skipulagsvandi hefur
valdið því að heilbrigðisþjónustan í
Reykjavík hefur ekki verið jafngóð
og skyldi. Á ég hér til dæmis við
neyðarþjónustu af ýmsum toga,
heimilislæknaþjónustu og svo
framvegis. Ég geri mér vonir um
það að með samstarfi við borgar-
lækni og heilbrigðismálaráð
Reykjavíkur takist að þoka
Reykjavík eitthvað áleiðis í þessum
efnum. Það er verulegur vilji til
þess og áhugi hjá formanni heil-
brigðismálaráðs Reykjavíkur,
Öddu Báru Sigfúsdóttur. og borg-
arlækni hér í Reykjavík, Skúla G.
Johnsen. Ég hef rætt þessi mál við
þau bæði og áður en langur tími
líður kemur það I ljós með hvaða
hætti við viljum taka á þessum
málum sem snerta þéttbýlasta
hluta landsins sérstaklega. En það
er alveg Ijóst, að það þarf að taka á
þessum málum hér með öðrum
hætti en gerist annars staðar í
landinu. Við verðum að gera okkur
grein fyrir því að við getum ekki
meðhöndlað þessi mál hér I
Reykjavík eins og í fámennustu
byggðarlögum landsins.
Sanieining ráðuneyta
Ríkisstjórnin hyggst „gera breyt-
ingar á stjórnarráðinu". Finnst þér
; "Fékkst þú þér
10 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMAL 1/1980