Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 16
heyrir þetta harðræði að mestu iið-
inni tíð.
Það er óheppilega algengt að
nota svefntíma sinn til að lengja
vinnutímann, eða til að sinna því
sem ekki vannst timi til að gera yfir
daginn. Sögupersónan Galdra-
Loftur, sem sagði að svefninn væri
óvinur sinn því hann stæli frá sér
tíma, er góður málsvari þeirra sem
telja sig hafa of mikilvægum verk-
efnum að sinna til að mega vera að
því að sofa.
Fólk með geðræn vandamál er
næmastfyrirsvefntruflunum. Mjög
oft hafa þessir sjúklingar haft
skertan eða engan svefn dagana
fyrir vistun á sjúkrahús. Þá virðist
svefnleysið sjálft með þeim kvíða,
orkuleysi, vonleysi og/eða rugl-
ástandi, sem oftast fylgir, vera sá
þáttur, sem helst gerir sjúklinginn
ósjálfbjarga. Þetta á að nokkru
.........."
Góó heilsa er
(jííilíi fevers IRíiRRS
Hinar margeftirspurðu
LONGO VITAL jurtatöflur
fást nú á íslandi.
LONGO VITAL töflurnar
eru vítamínríkar og hæfa
allri fjölskyldunni.
FAXAFEbb HF
einnig við um sálvefrænar truflanir
(psychosomatiskar truflanir) og
streituvandamál, sem oft leiða til
bráðra innlagninga á almenn
sjúkrahús. Svefntruflunin getur
vissulega verið afleiðing annarra
þátta, en hún er oftast orsök um
leið.
Þreyta
— andleg og líkamleg
Tala má um tvær gerðir þreytu.
Önnur er sú þreyta sem kemur eftir
líkamlegt erfiði, svo sem eftir að
vera á skíðum eða í garðvinnu.
Mætti kalla þetta líkamlega þreytu,
eða hreina þreytu. Henni fylgir
slökun á vöðvun, og sjaldan spenna
eða höfuðverkur. Fólki finnst þessi
þreyta yfirleitt þægileg. Hún gefur
góðan svefn og er horfin að morgni.
Hin tegundin, sem kalla má
andlega þreytu, kemur tíðast eftir
langan dag við vinnu sem krefst
andlegrar einbeitingar, eða vinnu
sem veldur bæði andlegu og til-
finningalegu álagi. Vinna við eril-
samar aðstæður, stjórnunarstörf,
vinna undir því viðbótarálagi að
vera þreyttur, gramur, dapur eða
kvíðinn og þurfa að leyna þessum
tilfinningum í vinnunni, sú aðstaða
að geta ekki varpað af sér áhyggj-
um dagsins að kvöldi — allt þetta
leiðir greiðlega til andlegrar þreytu.
Þessari þreytu, sem margir þekkja
vel, fylgir andleg spenna og sam-
svarandi spenna í vöðvum. Auk
FLATKÖKUR
Innihald: Rúgmjöl,
heilhvelti, hveiti, feiti og salt.
Bakari
Fríðriks Haraldssonar sf
Kársnesbraut 96, Kópavogl * 413 01
vöðvanna bregðast mörg önnur líf-
færakerfi við með aukinni virkni,
t.d. hjarta- og æðakerfi og rnelt-
ingarfæri. Oft hefur þó þessi þreyta
þau öfugu áhrif að fólki gengur illa
að sofna. Henni fylgir framtaks-
leysi og áhugaleysi að gera nokkuð
umfram hið nauðsynlega.
Andleg þreyta leiðir greiðlega, ef
ekkert er að gert, til versnandi
heilsufars. Slíkur vítahringur gæti
litið svona út. Andlegt álag veldur
spennuhöfuðverk og andvöku fram
eftir nóttu. Þreytutilfinning frá
morgni næsta dags ásamt þyngsla-
höfuðverk eða svima gerir við-
fangsefni dagsins erfiðari og kvið-
vænlegri en ella. Sama ástand
næstu daga og lítill svefn næstu
nætur veldur vöðvagigt, verkkvíða
og þverrandi orku.
Ekki er óeðlilegt að hugsa sér að
þær tvær gerðir þreytu sem hér
hefur verið lýst, þurfi mismunandi
tegund hvíldar. Sú kenning hefur
verið sett fram að hin tiltölulega
einfalda líkamlega þreyta samsvari
þörf fyrir djúpan, draumlausan
svefn, en andlega þreytan sem
virðist flóknara fyrirbæri samsvari
þörf fyrir draumasvefn. Heillar
nætur svefn ætti þá að endurnæra í
báðum tilvikum.
Sá sem er andlega þreyttur
hvílist þó oft verr, því þreytan
varnar honum svefns eða truflar
svefn hans. Styttursvefntími kemur
verr við þann sem þarf á drauma-
svefni að halda, þar eð drauma-
svefn er mestur á síðari hluta eðli-
legs svefntíma. Óvíst er um gildi
þessarar kenningar. Hitt er víst
að líkamleg áreynsla getur gefið
andlega þreyttum manni hvíld og
slökun og hæfileg líkamleg þreyta
er oft hans besta svefnlyf.
í næsta blaði verður fjallað um
það hvernig bæta má úr svefnskorti
og vandamálum tengdum honum,
hvað fólk getur sjálft gert og á
hvern hátt lyf eru notuð.
lngólfur S. Sveinsson er geðlœknir og
starfar við Kleppsspitalann, Landspltal-
ann og Reykjalund.
16 Frétlabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980