Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 17

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 17
Meðferð brunasára I Bandaríkjunum verða um 90% allra bruna í heimahúsum, nánar til tekið í eldhúsi og setustofu. Þar hefur verið talið að fyrirbyggja hefði mátt um 75% þessara bruna. Mætti því álykta að með nægilegri kennslu og leiðbeiningum til hins almenna borgara um brunavarnir og hvernig bregðast eigi við ef bruna ber að höndum megi draga úr alvarlegum brunaslysum. Kæling er löngu viðurkennd sem fyrsta meðferð við bruna, hún dregur úr áhrifum hitans á vefinn og þar með skemmdum. Bjúg- myndun verður minni og kælingin minnkar sviða og verki. Ber því að kæla hið brennda svæði svo fljótt sem kostur er, helst með hreinu vatni, ýmist með því að setja hið brennda ofan í kalt vatn eða leggja við það bakstra. Varast ber að hafa vatnið ískalt ef einstaklingurinn er látinn ofan í það, sérstaklega ef um stóra bruna er að ræða því að kuldinn eykur varmatap. Við lágan hita dragast háræðar og undirhúð saman. Blóðstreymi verður minna og afleiðingin gæti orðið súrefnisskortur í vefnum. Einnig gæti álagið á hjarta og æða- kerfi orðið of mikið, sérstaklega hjá Vatnskæling er árangursrík til að draga úr alvarlegum afleiðingum bruna. börnum og gömlu fólki svo og hjá þeim sem veikir væru fyrir. Þegar sjúklingur er fluttur getur verið gott að setja mulinn ís í plastpoka, í blautt handklæði eða lak og leggja að brunasárinu til að kælingin haldist við flutninginn. Venja er að kæla í 15—45 mínútur eða þar til sviði er svo til horfinn. Sviði er mestur í grunnum bruna, þ. e. 1. stigs og grunnum 2. stigs. Mjög mikilvægt er að draga úr verkjunt og hræðslu því hvort tveggja eykur hættu á losti. Full- orðnir eiga á hættu að fá lost við 15—20% bruna en börn og gamal- menni við 5— 10% bruna, en þetta fer einnig eftir fleiri þáttum, t. d. hvort viðkomandi er haldinn sjúkdómi sem gerir hann við- kvæmari fyrir en ella ( t. d. sykur- sýki, hjarta- eða nýrnasjúkdómi). Aldrei má setja ís beint á brennda húð. Það gæti valdið ein- kennum kals á vefnum en þau eru í stuttu máli þau að vefjavökvi gæti frosið eða það mynduðust ískrist- allar sem geta skaðað frumuna. Kuldi drepur hins vegar ekki vef á sama hátt og bruni. Kuldaskaði getur orðið við 0 til -5- 10°C, sérstak- lega ef raki er einnig til staðar. Vefurinn verður tilfinningalaus, hvítur og stífur. Ef um stóra bruna er að ræða er ráðlegt að kæla í nærfötunum og flytja einstakling- inn þannig á sjúkrahús eða til læknis. Ef óvarlega er klætt úr nærfötum getur skaðinn orðið enn meiri og einnig geta óhreinindi borist í sárin. Til að koma í veg fyrir of mikið varmatap við flutning þarf að breiða vel yfir sjúklinginn, helst eitthvað þykkt, það fyrirbyggir einnig núning. Ull má ekki leggja beint á sárin þar sem hún festist auðveldlega í þeim. Loftstraumur (trekkur) getur valdið verkjum og óþægindum vegna ertingar á taugaenda og þarf því að fyrir- byggja slíkt. Ef hendur brenna skal strax fjarlægja úr og hringi þar sem slíkt gæti þrengt að vefnum og blóðrásinni ef bjúgur myndast og valdið þannig skaða. „Níu reglan". Algengt er að meta hundraðshlutfall bruna samkvæmt þessari reglu. Ýmiss konar brunasmyrsl eru á markaðnum. Innihalda þau t. d. staðdeyfilyf (Ung. Zincain), A og D vítamín (Vandolin) eða verka bakteríuheftandi (Hibitane, Ceta- vlex). Skiptar skoðanir eru um gagn- semi þessara smyrsla, sérstaklega ef ekkert er í þeim sem drepur bakte- ríur og einkum ef brunasárin eru mikil. Mikill vökvi og salt tapast úr lík- amanum við stóra bruna. Þarf því að reyna að koma vökva í fólk svo fljótt sem kostur er. Ef viðkomandi getur drukkið er gott að gefa t. d. kjötseyði sem er ríkt af salti og ef sódaduft (natrium bicarbonat) er við hendina er gott að setja hálfa teskeið af því í glas og gefa líka. Kemiskir brunar sem verða af ýmiss konar efnum skulu strax skolaðir undir rennandi vatni, einnig ef eitthvað skvettist í auga. Skal síðan haft samband við lækni því að slíkir brunar krefjast yfirleitt frekari meðferðar. Höfundur þessarar greinar, Lilja Ósk- arsdóltir hjúkrunarfrœðingur, er kennari við Hjúkrunarskóla íslands. Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 1 7

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.