Heilbrigðismál - 01.03.1980, Qupperneq 23
J0tj
meti
Skoti og Gyðingur voru á
göngu saman. Allt í einu
beygir Gyðingurinn sig og
tekur upp smápening sem
hann hafði komið auga á.
Skotinn flýtti sér til næsta
augnlæknis og lét rannsaka í
sér sjónina.
•
Kosturinn við það að eiga
von á barni er sá, að þá veit
nraður livar það heldur sig.
•
„Hvað er pabbi þinn?“
„Kvefaður."
„Ég meina, hvað gerir
hann?“
„Hnerrar."
Læknirinn: „Ég get því
rniður ekki læknað manninn
yðar af því að tala í svefni."
Frúin: „En getið þér þá
ekki fengið hann til að tula
dálítið skýrar?"
Dag nokkurn var Agnar
garnli á elliheimilinu nreð
slæman hósta. Var brugðið á
það ráð að gefa honunr romm.
Daginn eftir var ganga-
stúlkan spurð hvernig honum
liði.
„Honum líður ágætlega,"
svaraði hún, ,,en nú eru hinir
karlarnir búnir að fá hósta."
Læknirinn er að sýna gest-
inum spítalann: „Og hérna
höfum við þá sem eru með
bíladellu."
Gesturinn: „Já, en hér er
enginn maður sjáanlegur. Eru
þá engir sjúklingar hér?“
Læknirinn: „Jú, þeir eru
allir undir rúmi að gera við.“
Krabbameinsfélag Reykjavíkur:
AUKIN FRÆDSLA
Aðalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur var haldinn mánu-
daginn 17. mars. Formaður félags-
ins, Tórnas Árni Jónasson læknir.
setli fundinn og minntist látins
heiðursfélaga, Sveinbjarnar Jóns-
sonar hæstaréttarlögmanns, en
Sveinbjörn var meðal stofnenda
félagsins og í fyrstu stjórn þess.
Formaður og framkvæmdastjóri
fluttu skýrslur um starfsemi félags-
ins. Fram kom að félagið hefur
unnið að ýmsum áhugamálunr
krabbameinssamtakanna og aukið
fræðslustarfsemi sína að mun. Á
skólaárinu 1978—79 heimsóttu
starfsmenn félagsins 15 þúsund
nemendur í 94 skólurn og horfur
eru á að sá þáttur fræðslustarfsins
nái á yfirstandandi skólaári til allra
deilda í 5.-9. bekk grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu. Utan þess
hefur þegar verið farið í nteira en
40 skóla í vetur.
Blaðið Takntark er gefið út fjór-
unt sinnuni á skólaári og fyrst og
fremst dreift til fjögurra aldurs-
flokka nemenda í grunnskólunr unr
land allt. Upplag blaðsins er 30
þúsund eintök. Einniggefurfélagið
út Verkefni fyrir hópvinnu, laus-
blaðasafn með fjölbreyttum heim-
ildum varðandi áhrif og afleiðingar
reykinga. Er það einkum hagnýtt í
6. bekk grunnskóla. Litabókar-
blöðum um sama málefni er dreift
árlega til nemenda í 8 ára bekk um
allt landið.
Gefinn var út nýr bæklingur
(Hjálp til sjálfshjálpar) í flokki
fræðslurita um krabbamein og
krabbameinsvarnir og tveir áður
útkomnir bæklingar í sanra flokki
endurprentaðir. Enn aðrir eru í
undirbúningi svo og allmikið safn
litskyggna með tilheyrandi skýr-
ingum til nota í fyrirhugaðri al-
menningsfræðslu um krabbamein.
Félagið eignaðist nokkrar nýjar
fræðslukvikmyndir á árinu og lét
vinna upp nýjan litskyggnuflokk
um áhrif reykinga á heilsuna. Var
hann einkurn notaður í efstu
bekkjum grunnskóla og nokkrum
framhaldsskólum.
Fjórðungur af kostnaði við
fræðslustarfið árið 1979 var
greiddur með framlögum frá ríki
og Reykjavíkurborg.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
sér um rekstur á Happdrætti
Krabbameinsfélagsins og jukust
umsvif þess ntjög á síðasta ári.
Lagði félagið rúmlega 42 milljónir
króna af ágóða happdrættisins og
öðrum tekjum sínum til starfsemi
Krabbameinsfélags íslands, þar af
7,5 milljónir sérstaklega til krabba-
Fréttabréf um HEILBRIGÐtSMÁL 1/1980 23