Heilbrigðismál - 01.03.1980, Qupperneq 31

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Qupperneq 31
Neysluvatn eða hreinsaður sjór við fiskvinnslu ? Grein eftir Baldur Johnsen í grein pessari er fjallað um notk- un á sjó I stað ferskvatns við hreins- urt og pvotta á sjávarafurðum. Sjór klórhreinsaður með rafgreini varð- veitir ótriilega vel hragð, lykt, gerð, fersklegt útlit og önnur gœði gaffal- bita og síldarflaka sem lögð hafa verið niður I dósir, enda nota pœr verksmiðjur í fiskiðnaði í Svipjóð og víðar, sem lengsta hafa reynsluna og hest hafa orð á sér fyrir góða vöru, eingöngu hreinsaðan sjó við slíka starfsemi en ekki ferskvatn. Það þarf að mörgu að hyggja og vanda hvert skref á öllum stigum framleiðslunnar þar sem viðkvæm matvæli eiga í hlut eins og dósa- matur af ýmsunt gerðum, sem fer beint á borð neytandans. Hér á landi hafa því miður ofl orðið mis- tök í þessunt efnum, sem eru stór- hættuleg og geta komið varanlegu óorði á íslenska framleiðslu. í fersku minni eru hin afdrifaríku mistök í niðurlagningu á síldarbit- um og niðursoðinni rækju. Það er erfitt hér á Islandi að veijast óhreinindum úr umhverf- inu þar sem sorphirðingu og þó sér- staklega skólpmeðferð er víða mjög ábótavant, t.d. oftast látið nægja að leiða skólp niður í næstu fjörur sem oft eru við hliðina á fiskiðjuver- unum. Slíkt er óverjandi. Af þessu tilefni rifjaðist upp fyrir mér ferð sem farin var ár- ið 1958 á vegum bæjarstjórnar Vestmannaeyja til þess að skoða aðferðir eyjabúa í Víkinni (Bohus- lán) fyrir norðan Gautaborg í Sví- þjóð til öflunar neysluvatns, sem ekki er fáanlegt í eyjunum. Eftir þessa athugun var ákveðið að leiða vatn úr landi til Vestmannaeyja. Leiða þarf það úr landi yfir djúp og breið sund, en það þótti dýr vatns- öflun og var því snemma lögð áhersla á að nota sjó í hinunt mikla fiskiðnaði sent stundaður er í þess- um eyjum. Til þess þurfti að hreinsa sjóinn og fannst nú niiklu betri aðferð en áður hafði þekkst, þ.e. klórhreinsun með rafgreini. Sú aðferð gaf ntiklu betri afuróir en áður með nieira geymsluþoli. Undirritaður skoðaði nokkrar stórar verksmiðjur á þessunt slóð- um, einkum í Lysekil, t.d. hinar frægu ABBA-verksmiðjur. Það verður að segjast eins og er að ekki lágu leyndardómar niðursuðu né niðurlagningar á glámbekk þar. Ferðalangur úr Vestmannaeyjum, sem gat verið hugsanlegur keppi- nautur, fékk að vísu að koma inn í einn verksmiðjusalinn en varð að standa á afgirtu svæði í einu horn- inu fjarri fólki og tækjum (iðnað- arnjósnir eru ntikið stundaðar og mættu íslendingar vara sig með sinn séríslenska iðnað). Hins vegar leyndu sér ekki þau tæki utan dyra þar sem klórhreins- un á sjó fór fram í stórum geymum. en þar leiddi vísindamaðurinn og efnaverkfræðingurinn Martin Lundborg, forstöðumaður Haf- rannsóknastofnunarinnar í Lysekil, undirritaðan í allan sannleikann. Eftir beiðni fiskiðjumanna hannaði hann sjóklórhreinsunaraðferð með rafgreini. Þessi klórhreinsunarað- ferð hentaði fiskiðnaðinum og gaf ntjög góðan árangur þar sem aðrar aðferðir dugðu ekki við hinn óhreina sjó á þessum slóðum. Þar að auki átti sjór miklu betur við sjávarafurðir til hreinsunar og þvotta heldur en ferskvatn og máttu menn raunar vita það fyrir- frani. Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir klórhreinsunartækjum Martins Lundborg. Hentug aðferð Allt frá því að Svíinn Scheele uppgötvaði klór árið 1774 hefir þetta efni verið notað, fyrst til lykt- areyðingar en síðan til sótthreins- unar, ýmist í formi „klórgass" eða ,.hypochlorite“. Um aldamótin síðustu var þegar farið að nota klór til hreinsunar neysluvatns, og þó fyrr og ekki síður til gerilsneyðing- ar á skólpi og öðru óhreinu frá- rennsli víða um lönd, þar sem Fréttabrét um HEILBRIGÐISMAL 1/1980 31

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.