Heilbrigðismál - 01.03.1980, Side 32

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Side 32
menn fyrir löngu hafa skilið smit- hættuna ef ekki var beitt hreins- unum. Á árunum 1946—48, eftir nokkurra ára tilraunir, hafði Martin Lundborg tilbúið klór- hreinsunartæki sitt, og var það þegar tekið í notkun í allmörgum verksmiðjum. Árið 1950 var svo árangur af þessari nýju klórhreins- unaraðferð skoðaður og borinn saman við aðrar aðferðir, en sjö af tíu niðurlagningarverksmiðjum á þessum slóðum, sem tekið höfðu upp hina nýju aðferð, voru með í rannsókninni og lögðu til efnið (það var raunar einkum Islandssíld þá). Aðalniðurstöðurnar úr þessari rannsókn voru eins og hér segir: 1. Klórgas þótti varasamt, jafnvel hættulegt í notkun. 2. „Hypochlorite" þótti of dýrt þvi mikið þurfti af því í sjóinn. * Góó feeilsa ep öæfa líveps raarcrcs c---------------------------\ Þurrkaðir ávextir frá CASTUS eru í hæsta gæðaflokki. Biðjið um CASTUS rúsfnur, döðlur, sveskjur, gráfíkjur og apríkósur. FAXAFEfcb HF *■ ■* 3. Klórhreinsun með rafmagni var ódýrust, og þó var þarna þá notað rafmagn keypt frá Noregi og leitt um sæstreng út í eyjar í Víkinni. 4. Bakteríugróður í sjó reyndist viðkvæmari fyrir breytingum á saltinnihaldi og sýrustigi, pH, heldur en ferskvatnsbakteríur. 5. Bakteríugróður í síldarflökum og bitum, sem lögð voru í lög með sjó reyndist eftir tvo mánuði marg- falt minni en ef notað var ferskvatn þótt hreinsað væri. 6. Við notkun á rafhreinsuðum sjó við niðurlagningu síldarafurða reyndist útlit, bragð, lykt og gerð óaðfinnanleg eftir tvo til þrjá mán- uði. Hins vegar var farið að sjá mikið á síldarafurðum sem lagðar höfðu verið 1 lög með ferskvatni eftir sama tíma, og/eða ferskvatn notað til hreinsunar og þvotta. 7. Þessar niðurstöður eru i góðu » ............................. Góó keilsa ep gæfa ImiPS ircarcrcs Ren-i-mun er sænskt tannkrem, ÁN FLÚOR og ÁN SLÍPIEFNA. FAXAPEbE HF samræmi við þá skoðun færustu matvælafræðinga á sviði sjávaraf- urða, að sjór henti best við alla meðferð sjófangs og valdi síður skemmdum á dósunum. Ekki er vitað annað en að þessar niður- lagningaraðferðir séu enn í fullu gildi. Tækið sem notað er til rafgrein- ingar er mjög einfalt að gerð. Grafit(kola)stöng er stungið inn í járnhólk. Járnhólkurinn er tengdur bakskauti (katóðu) í rafleiðslu, en grafit-stöngin tengd forskauti (anóðu). Leiðslan er tengd jafn- straumi og myndast þá klór við grafit-stöngina. Tæki þessi eru framleidd í ýmsum stærðum, allt eftir því hve mikinn sjó á að klór- hreinsa í einu. Það er t.d. hægt að fá lítil og ódýr tæki í fiskibáta og tog- ara, og stærri í stór fiskiðjuver eða samtengdar sjóveitur. Ferskvatnió getur þrotið Hér að framan hefir verið rætt um þá miklu kosti sem klórhreins- GJAFIR Á árinu 1979 bárust Krabba- meinsfélagi íslands gjafir frá eftir- töldum aðilum: Ólafía Ólafsdóttir, Eyjum í Kjós, til minningar um Harald Magnús- son: 100.000 kr. — V.J.: 30.000 kr. - P.Á.: 5.000 kr. — Poula S. Sörensen: 20.000 kr. — R.E.S.: 5.000 kr. — Úr dánarbúi Lilju Hjartardóttur: 237.500 kr. — Úr minningarsjóði sem Starfsmanna- félag Hafnarfjarðar stofnaði til minningar um Guðjón Gunnars- son framfærslufulltrúa: 100.000 kr. — Kvenfélag Garðabæjar: 25.000 kr. — S.S.: 10.000 kr. — Hluta- veltur: 7.200 kr. og 8.720 kr. — Nesco hf.: 530.000 kr. og 537.370 kr. Félagið vill hér með þakka fyrir allar gjafir, stórar sem smáar, og þann hlýhug sem þær bera vitni um. H.Th. 32 Fréttabréf um HEILBRIGDISMÁL 1/1980

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.