Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 12

Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 12
Hvernig þú gœtir heilsu þinnar meöan þú sefur. Líðan og heilsa hvíla á rúminu. Lattoflex er lausnin. Bakið þarf góða hvíld í réttri stöðu. Annars fær brjóskið milli hryggjaliðanna ekki nauð- synlega endurnæringu. Stirðleiki og bak- verkur er þá yfirvofandi. í svefni á bakið helst að hvíla í sömu stöðu og þegar menn standa uppréttir. Og vera beint þegar legið er á hlið. Lattoflex rúmbotninn er sérhannaður í því skyni að tryggja rétta hvíldarstöðu í mismunandi stellingum. Hann er gerður úr trérimum með gúmmífjöðrun og lagarsig að sveigju líkamans. Lattoflex dýnan er uppbyggð í einingum og fylgir sveigjunni í rúmbotninum. Innri og ytri gerð hennar veldur því að loftið leikur þægi- lega um þann sem á dýnunni hvílir. Hægt er að fá rúmgerðir með stillanlegri höfuðhæð. Auk þess má lyfta þeim hluta sem ertil fóta. LattofleX gefur eftir svo að axlarými verður meira og æskileg slökun næst á taugum og axlavöðvum. Lattoflex er árangur af tilraunastarfi svissn- eskra lækna og visindamanna. Rúmin sem við seljum eru frá þekktu finnsku fyrirtæki, samkv. einkaleyfi. Lattoflex Gelemat er gerð sem er sérstaklega ætluð sjúklingum. Hægt er að stilla það rúm- liggjandi. Þessi gerð léttir langlegusjúkling- um lífið. Einnig þeim sem eru veikir fyrir hjarta eða í brjósti. Hringið, — eða lítið við í versluninni. — Fáið bækling. Síðumúla 34. Sími 84161

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.