Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 20
Þessi hluti þjónustuálmunnar var
byggður á árunum 1975—80. Hér er
slysadeild, heilsugæsla, göngudeildir
o.fl.
á þessu ári til að bjóða út annan
verkáfanga þurfi að vera 2,4
milljónir króna, 23,6 millj. kr. á
næsta ári, síðan 17,6 millj. kr. og
loks 7,2 millj. kr. árið 1984.
Þessar hugmyndir hafa verið
samþykktar 1 stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkur og hjá borgarráði, og
eru nú til meðferðar í heilbrigðis-
ráðuneytinu og fjármálaráðuneyt-
inu.
FRAMTÍÐARVERKEFNIN
Þegar B-álman hefur verið byggð
verður gólfflötur bygginganna alls
um 27.600 fermetrar, en gert hefur
verið ráð fyrir aukningu um nær
100 þúsund fermetra.
Að loknum framkvæmdum við
B-álmuna hefur verið rætt um að
halda áfram með þjónustuálmuna
(G2). Einnig eru áform um að
sunnan við spítalann rísi fram-
tíðaraðstaða fyrir sjúkra- og iðju-
þjálfun, skrifstofur spítalans o. fl.
Borgarspítalanum í Fossvogi til-
heyrir lóð sem er tæpir 30 hektarar
(296000 fermetrar) og nær norður
undir væntanlegan Bústaðaveg og
vestur að Kringlumýrarbraut.
UMFANGSMIKIL
STARFSEMI
í Borgarspítalanum í Fossvogi
eru átta deildir og fjöldi rúma alls
slysa- og sjúkravakt er einnig að-
staða fyrir starfslið bæjarvaktar.
Á þriðju hæð er eftirmeðferð
sjúklinga sem komið hafa á slysa-
deild svo og göngudeildarstarfsemi
annarra deilda. Þá er í austurenda
sömu hæðar aðstaða heilsugæslu-
stöðvarinnar.
I tengibyggingu eru tvær nýjar
rannsóknastofur röntgendeildar og
móttaka sjúklinga bæði frá slysa-
móttöku og utan frá.
Enn er óráðstafað húsnæði í
austurenda fyrstu hæðar svo og því
húsnæði sem losnar á annarri hæð
E-álmu.
B-ÁLMAN I BYGGINGU
Nú er verið að byggja svonefnda
B-álmu Borgarspítalans en þareiga
að vera 174 rúm fyrir langlegu-
sjúklinga (80% aukning á núver-
andi fjölda rúma á spítalanum).
Auk kjallara verða hæðirnar sjö,
hver tæpir 800 fermetrar, alls 6.846
fermetrar eða 23.176 rúmmetrar.
Verkþáttur sá sem nú er 1 gangi
var boðinn út síðastliðið haust.
Uppsteypu á að vera lokið í febrúar
1982 og frágangi utanhúss 1.
september 1982.
Framkvæmdir við hyggingu B-álm-
unnar hafa gengið mjög vel í sumar.
Álman verður sennilega öll steypt
upp fyrir áramót.
Vegna þess ástands sem ríkir 1
málefnum aldraðra og umræðna
um bráðabirgðaráðstafanir hefur
bygginganefnd Borgarspítalans
endurskoðað áætlanir sínar. Telur
nefndin að flýta megi fram-
kvæmdum með auknu fjárframlagi
á þessu og næsta ári og hafa tvær
efstu hæðirnar (58 rúm) tilbúnar til
notkunar upp úr miðju ári 1982, 87
rúm árið 1983 og 29 rúm 1984. Til
þess að ná þessu marki þarf að
bjóða út annan verkáfanga (hita-
og vatnslagnir svo og múrverk
innanhúss) á miðju þessu ári, hefja
framkvæmdir á haustmánuðum og
láta múra húsið að innan yfir vetr-
armánuðina.
Aætlað er að viðbótarfjárveiting
20 Fróttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981