Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 34
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLAADS 30ÁRA
Félagslög
Lög Krabbameinsfélags fslands
1. gr.
Félagið heitir Krabbameinsfélag Is-
lands. Virkir félagar eru starfandi
krabbameinsfélög hér á landi, er skipuð
séu eigi færri en 20 meðlimum, starfi í
samræmi við lög Krabbameinsfélags
íslands og hafi hlotið staðfestingu
stjórnar þess. Stofnanir, félög og ein-
staklingar geta orðið styrktarfélagar
þess, [með frjálsum framlögum.]2
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í
Reykjavík.
3. gr.
Tilgangur félagsins er að styðja í hví-
vetna baráttu gegn krabbameini. Þess-
um tilgangi hyggst félagið fyrst og
fremst ná með því:
1. Að fræða almenning í ræðu og riti
og með kvikmyndum um [orsakir
og]2 helstu byrjunareinkenni
krabbameins, eftir því sem henta
þykir.
2. Að stuðla að aukinni menntun
Iækna í greiningu og meðferð
krabbameins.
3. Að stuðla að útvegun eða kaupum á
fullkomnustu lækningatækjum á
hverjum tíma og nægu sjúkrarúmi
fyrir krabbameinssjúklinga.
4. Að hjálpa krabbameinssjúklingum
til þess að fá fullkomnustu sjúkra-
meðferð sem völ er á, [meðal annars
með skipulagsbundinni leit að
sjúklingum.]2
5. Að stuðla að krabbameinsrann-
sóknum hér á landi.
6. Að vinna að stofnun krabbameins-
félaga í bæjum og héruðum landsins
og hafa nána samvinnu við þau.
[7. Að sjá um skráningu allra krabba-
meinssjúklinga í landinu og fylgjast
með þeim eftir því sem unnt er.]2
4. gr.
[Hvert krabbameinsfélag innan
Krabbameinsfélags Islands skal greiða
a. m. k. 50% af árstekjum sínum til
Krabbameinsfélags fslands, þó aldrei
minna en kr. 1.000.*]2 [Stjórn Krabba-
meinsfélags íslands getur þó heimilað
einstökum starfandi krabbameinsfélög-
um að nota meira en 50% af heildar-
tekjum þess félags, ef stjórn viðkomandi
félags telur rétt að stofna til sérstakrar
söfnunar vegna einstakra framkvæmda
félagsins I samræmi við tilgang þess, og
að fengnu samþykki meirihluta lækna
innan stjórnar Krabbameinsfélags Is-
lands og viðkomandi félags.]1
5. gr.
Æðsta vald í öllum málefnum félags-
ins er í höndum aðalfundar. Skal aðal-
fundur haldinn fyrir maílok ár hvert.
Boðar stjórn félagsins til hans [bréflega
með a. m. k. mánaðar fyrirvara.]3
Hverju skuldlausu krabbameins-
félagi er heimilt að senda einn fulltrúa,
og auk þess einn fulltrúa fyrir hverja
200 félagsmenn fram yfir 300 . . .2
Heimilt er félagi að senda utanfélags-
menn sem fulltrúa.
6. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 8 mönn-
um, og skal hún kosin á aðalfundi.
Formaður skal kosinn skriflega til
tveggja ára í senn, en meðstjórnendur
skriflega eftir uppástungum. Árlega
vikja [tveir meðstjórnendur úr stjórn,]2
þeir er lengst hafa setið. Auk þess skal
kjósa fjóra menn í varastjórn.. ,2
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum,
kýs sér varaformann og velur úr sínum
hópi þriggja manna framkvæmda-
nefnd, er stendur fyrir framkvæmdum
félagsins. Skulu framkvæmdanefndar-
menn vera búsettir í Reykjavík eða ná-
grenni. Stjórnendur félagsins hafa full-
trúarétt á aðalfundi.
7. gr.
[Tillögur um lagabreytingar skulu
berast formanni í tæka tið þannig að
hann geti sent þær stjórnum krabba-
1951 - 27. JIJNÍ 1981
meinsfélaganna mánuði fyrir aðal-
fund.]3
8. gr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi
mál:
1. Skýrsla stjórnarinnar um starf síð-
astliðins árs.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins
fyrir liðið ár, lagðir fram til sam-
þykkis og úrskurðar.
3. Kosin stjórn [og varastjórn.]2
4. Kosnir tveir endurskoðendur og
einn til vara.
5. Önnur mál sem upp kunna að vera
borin.
9. gr.
Hverju félagi er skylt að tilkynna
stjórn Krabbameinsfélags Islands um
fulltrúa sína ekki síðar en tveim dögum
fyrir aðalfund. Er fundurinn [lögmæt-
ur,]2 hvort sem fleiri eða færri mæta, svo
framarlega sem löglega er til hans boð-
að.
Formaður setur aðalfund og tilnefnir
fundarstjóra og fundarritara.
10. gr.
Á aðalfundi og stjórnarfundi ræður
afl atkvæða úrslitum. Stjórnarfundi
boðar formaður hvenær sem hann telur
henta, og skylt er honum að halda
stjórnarfund ef 3 stjórnendur beiðast
þess. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef
5 af stjórnendum sækja fundinn.
11. gr.
Reikningsár félagsins skal vera [al-
manaksárið.]2 Allir reikningar og
skýrslur frá sambandsfélögum skulu
vera komnir í hendur stjórnarinnar
[minnst mánuði fyrir aðalfund.]3
12. gr.
Til breytinga á lögum félagsins þarf
3/5 greiddra atkvæða á aðalfundi.
13. gr.
Til þess að leggja félagið niður, þarf
samþykki tveggja aðalfunda, og séu
félagsslit samþyíckt [með a. m. k.]2 4/5
greiddra atkvæða á hvorum fundi. Geta
skal sérstaklega áforms um félagsslit I
fundarboðinu. Verði félagið lagt niður
skal eignum þess ráðstafað til líknar-
starfa [í samráði við heilbrigðisráðu-
neytið. Aldrei má breyta ákvæðum 13.
gr. um ráðstöfun eigna félagsins né
heldur breyta 3. gr. þannig að raskað
verði megin tilgangi félagsins.]3
Lögin eru aö stofni til frá 27. júni 1951.
1) Breyling samþykkt á aðalfundi 29. maí 1963.
2) Breyting 6. maí 1964.
3) Breyting 5. mal 1978.
*) Nú 10 nýkr.
34 Fróttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981