Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 18
Byggingamál Borgarspítalans:
HLUTI B ÁLMUMAR
TEKIW í \OTKl \
A XÆSTA ARI ?
Þegar heilbrigðisþjónustu við
aldraða ber á góma er oft getið um
það hve mikil úrlausn fengist á
þeim málum ef svokölluð B-álma
Borgarspítalans kæmist í notkun. í
sumar er sú álma loks að rísa og því
þótti við hæfi að kynna lesendum
byggingamál þessa stóra sjúkra-
húss.
ÞRJÁTÍU ÁRA
BYGGINGASAGA
Snemma árs 1934, fjórum árum
eftir að Landspítalinn var tekinn í
notkun, skrifaði Vilmundur Jóns-
son landlæknir bréf til bæjarráðs
Reykjavíkur þar sem hann hvetur
til þess að bærinn leggi meira fé til
heilbrigðismála og segir m. a.: „Að
sjálfsögðu kemur að því, að
Reykjavík verður að eignast sóma-
samlegt bæjarsjúkrahús.“ Fjórtán
árum síðar spáir hann því að það
Grunnmynd einnar af hœdunurn í
B-álmunni. A hverri hœó (2.— 7.)
verða 29 rúm. Heildarlengd nýhygg-
ingarinnar er um 56 metrar og
hreiddin um 18 metrar.
verði „hið mesta sjúkrahúsfyrir-
tæki landsins.“
í árslok 1948 skipaði bæjarstjórn
Reykjavíkur nefnd til að undirbúa
byggingu spítalans. Hún skilaði
áliti 1 júní 1949 og lagði til að reist
yrði í Fossvogi, sunnan Bústaða-
vegar, bæjarsjúkrahús er rúmaði
325 sjúklinga, auk 40 sjúklinga á
farsóttadeild. Þá áttu að vera 1
byggingunni röntgen- og lækn-
ingastöð og aðstaða fyrir hjúkr-
unarkennslu. Nokkrum mánuðum
síðar fól bæjarstjórn nefndinni að
láta gera teikningar af sjúkrahúsinu
og voru til þess fengnir Einar
Sveinsson, húsameistari bæjarins,
og Gunnar Ölafsson, arkitekt.
Grunnur var grafinn árið 1952.
Nokkrum mánuðum síðar voru
teikningar lagðar fram. Þær mið-
uðu við 70 þúsund rúmmetra
T-laga byggingu. Haustið 1953 var
samþykkt að byggja eftir þessum
teikningum og framkvæmdir hóf-
ust á miðju ári 1954. Ákveðið var
að fresta byggingu svonefndrar
B-álmu en á næstu sjö árum tókst
að steypa hina hlutana upp, alls um
56 þúsund rúmmetra.
Fyrsta deildin sem hóf starf 1
Borgarspítalanum í Fossvogi var
röntgendeildin (6. maí 1966). Fyrsti
legusjúklingurinn var hins vegar
ekki fluttur í spítalann fyrr en 28.
desember 1967, og telst sá dagur
stofndagur spítalans. Flestar deild-
anna tóku til starfa á árinu 1968.
18 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981