Heilbrigðismál - 01.06.1981, Blaðsíða 6
Sú tegund bótúlínus eitrunar sem
eingöngu leggst á ungbörn er talin
geta stafaó af hakteríum í matvœl-
um, m. a. hunangi. Enginn dregur í
efa ágœti hunangs sem bœtiefnaríks
sœtiefnis en óþarfi er að gefa þaó
börnum yngri en eins árs.
un voru send fjölmörg matvæla-
sýnishorn til rannsóknar í Banda-
ríkjunum. Þær rannsóknir hafa
ekki enn leitt neitt í ljós um upp-
runa eitursins. Þegar þetta er ritað
FftXftFEMbHF
eru allir sjúklingarnir á góðum
batavegi.
Ungbörn. Þar til fyrir fáum árum
var talið að bótúlínus eitrun gæti
ekki átt sér stað nema fólk borðaði
eitrið sem bótúlínus bakterían
myndar eða ef eitrið kæmist í
snertingu við opið sár. Árið 1975
var fyrst lýst tilfellum af bótúlínus
eitrun í smábörnum þar sem ekki
var um að ræða neyslu eitraðra
matvæla, heldur bakteríunnar í
sporaformi. I þörmunum mynda
sporarnir síðan eitrið. Fullorðið
fólk virðist geta spornað við þessari
breytingu (hugsanlega vegna sýru-
myndunar eða ónæmisvarna) en
ungbörn eru óvarin gegn henni.
Bótúlínus eitrun hjá ungbörnum er
hægfara og lýsir sér helst með
hægðatregðu, almennum slapp-
leika, stundum kyngingarörðug-
leikum og óeðlilegum augnhreyf-
ingum. Þessi tegund eitrunarinnar
virðist ekki eins bráðhættuleg og
þegar eitrið sjálft er borðað, en þó
hefur dauðsföllum verið lýst.
Einnig hefur það vakið athygli ný-
lega að hjá nokkrum ungbörnum
sem dóu skyndilega í vöggu fannst
bótúlínus eitur. Víðtækar banda-
rískar rannsóknir leiddu í ljós að í
10—15% af hunangi er að finna
þessa spora og að til hunangs megi
rekja þriðja hverl tilfelli af bótú-
línus eitrun í ungbörnum. Af
þessum sökum hefur samband
bandarískra barnalækna sent frá
sér yfirlýsingu þar sem varað er við
að gefa börnum á fyrsta ári hun-
ang. -jr.
HÁALEITIS
APÓTEK
Háaleitisbraut 68
Reykjavík
Léttmeti
„Hvers vegna heldur þú að
maðurinn þinn hafi drukkið
of mikið í gærkvöldi?"
„Jú, hann tók pening upp úr
vasa sínum, stakk honum í
póstkassann, leit upp á klukk-
una 1 kirkjuturninum og
sagði: Fjandinn sjálfur, er ég
ekki þyngri en þetta?"
•
Kalla litla var sagt að stóra
systir hans hefði eignast barn.
„Flott,“ sagði Kalli. „Ég er
bara átta ára og nú þegar orð-
inn frændi. Þá get ég jafnvel
orðið afi áður en ég fermist."
•
„Fórstu að ráðum mínum
gegn svefnleysinu? Taldir þú
kindur?“
„Já, það gerði ég læknir. Ég
taldi upp að 482.354!“
„Og sofnaðir þú ekki?“
„Nei, þá var kominn tími til
að fara á fætur."
•
„Læknir, ég er að verða svo
gleyminn."
„Ég skil Jónatan minn.
Viltu ekki fá þér sæti?“
„Takk fyrir, fá mér hvað?“
„Sæti. Jæja Jónatan minn.
Hvenær tókstu fyrst eftir
þessu vandamáli?"
„Hvaða vandamáli?“
•
Aumingja gamli maðurinn.
Hann lagði peninga til hliðar
fyrir ellina, en nú man hann
ekki til hvorrar hliðarinnar
það var.
•
„Hvað er hryggur?"
„Það er súla, á efri endan-
um situr höfuðið en á þeim
neðri sitjum við sjálf.“
6 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 2/1981