Heilbrigðismál - 01.09.1983, Page 25

Heilbrigðismál - 01.09.1983, Page 25
greindur hjá 79 körlum og 45 kon- um, eða alls í 124 Islendingum. Læt- ur nærri að það sé uni 1% af ölluni krabbameinum. Hodgkins sjúkdóm- ur getur fundist í fólki á öllum aldri, en meðalaldur við greiningu hans er um 46 ár. Krabbameinsskráin segir okkur jafnframt til um það á hvern hátt lifun (survival) sjúklinga með Hodg- kins sjúkdóm hefur breyst þann tíma sem skráin nær yfir. Af þeim sem greindir voru með þennan sjúk- dóm á árunum 1961—65 lifði fjórdi hver í a. m. k. fimm ár en nú lifir annar hver Hodgkins- sjúklingur svo lengi. A meðfylgjandi línuriti má sjá hvernig þessi breyting hefur orðið, bæði hjá konum og körlum. Pað er því ljóst að horfur þeirra sem fá Hodgkins sjúkdóm nú eru betri en þeirra sem fengu þennan sjúkdóm fyrir nokkrum árum og áratugum. Það gildir síðan hið sama um Hodgkins sjúkdóm, eins og um flest önnur krabbamein, að til þess að ná árangri sem bestur getur talist á hverjum tíma verður að koma til samhent átak margra stétta Iteil- brigðisþjónustunnar, þar sem sér- þekking og hæfni hvers og eins færir okkur skrefi nær takmarkinu. Dr. G. Snorrí Ingimarsson er krabbameinslæknir á Landspítalanum og Jónas Ragnarsson er annar af rít- stjórum Heilbrigðismála. Barnmergð: Tuttugu barna mæður og þrjátíu barna faðir Nú er það orðið mun sjaldgæfara en áður að konur eigi mörg börn. Árin 1961-65 voru 50% fæðandi kvenna að eiga sitt fyrsta eða annað barn en 1976-80 var þannig ástatt fyrir 69% kvenna. Á sama tíma hef- ur hlutfall þeirra kvenna sem voru að eiga sitt sjötta barn eða síðara lækkað úr 9,4% í 1,7%. Á sjötta áratug þessarar aldar voru fæðingar þar sem konan var að eiga sitt tíunda barn eða síðara mun algengari en nú er orðið. Þá bar slíkt við í einni fæðingu af hundrað, en á áttunda áratugnum var hlutfallið ein fæðing af áttahundruð. Síðasta áratuginn (1972-1981) fæddust 50 börn sem voru 10.-15. barn móður sinnar, samkvæmt gögnum Fæðingaskrárinnar. Fjöldi slíkra fæðinga var 48 og mæðurnar voru 42. Við manntalið 1960 var á lífi 51 kona sem átt hafði 15 börn eða fleiri. Ekkert skal fullyrt um það hver fætt hefur flest börn hér á landi. Staðfest er (I) að Rannveig Ágústína Oddsdóttir (f. 1875) á ísa- firði átti 20 börn með Rósntundi Jónssyni eiginmanni sínum. Einnig er staðfest (2) að hjónin Mundína Freydís Þorláksdóttir (f. 1899) og Sigurbjörn Finnur Björnsson í Ólafsfirði áttu 20 börn, þar af náðu '6 börn fullorðinsaldri. Hvorug þessara kvenna átti tvíbura. Oddný Benediktsdóttir (f. 1866) og Friðrik Benonýsson, Gröf í Vest- manneyjum, ntunu einnig hafa átt 20 börn. Hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Eiríkur Einarsson, sem bjuggu í Réttarholti í Reykjavík á fyrri hluta þessarar aldar, eignuðust 15 börn — allt stúlkur. Sú elsta var 22 ára þegar sú yngsta fæddist (3). Barnmargir feður hafa líka verið til. Jón Jónsson (f. 1799), sem bjó í Helgafellssveit, er sagður hafa átt 14 börn með fyrri konu sinni en 16 með þeirri síðari (4). Hitt er svo annað mál að sagnir eru um barnfleiri konur og karla fyrr á öldum, allt að 24 barna móður og fimmtíu barna föður (5). Þetta verð- ur þó seint sannað. Lýkur hér þessari stuttu sam- antekt um „margbyrjur" (grand- multipara) o. fl., en ábendingar um aðrar slíkar eru vel þegnar. Hcimildir: 1) Prcstsþjónustubækur Skutulsfjard- ar, Eyrar og ísafjardar 1877-1925. 2) Prcstsþjón- ustubækur Kvíabckkjar 1865—1945. 3) Öldin okkar 1961 (Tíminn 12.2. 1961). 4) Valtýr Stcfánssón: Mcnn og minningar, 1959, bls 108. 5) Stcinar J. Lúövíksson: íslandsmctabók Arnar og örlygs, 1983, bls. 14-15. Grein eflir dr. Gunnlaug Snœdal yfirlœkni, Gunnur Biering yfirlœkni, Helga Sigvaldason verkfræding og Jónas Ragnarsson ritsljóra. Aö sumu leyti byggt á grein sömu höfunda í Lœknablaðinu, 7. tbl. 1983. HEILBRIGÐISMÁL 3/1983 25

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.