Heilbrigðismál - 01.09.1985, Qupperneq 8
HEILBRIGÐISMAL/ Jóhannes Long
Lítill flúor í fæðunni
Grein eftir Öldu Möller
Á undanförnum árum hefur
stundum verið rætt um flúortekju
landsmanna og hugsanlega flúorbæt-
ingu drykkjarvatns. Flestir hafa ver-
ið sammála um að kanna þyrfti
flúortekju úr fæði hérlendis áður en
flúorbæting vatns yrði reynd, sér-
staklega þar sem fiskur hefur oft ver-
ið talinn góður flúorgjafi og fisk-
neysla talin mikil hér.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
fékk sumarið 1983 úthlutað styrk úr
Vísindasjóði til rannsókna á flúor í
matvælum og flúortekju úr fæði. í
þessum rannsóknum var mældur
flúor í mörgum íslenskum matvælum
og stuðst við niðurstöður erlendra
rannsókna (aðallega sænskra og
finnskra) á innfluttum matvælum.
Flúortekja var síðan reiknuð með
hliðsjón af niðurstöðum nýlegra
kannana Manneldisráðs íslands á
fæðuneyslu skólabarna annars vegar
og fjölskyldna á höfuðborgarsvæð-
inu hins vegar. Flúor í íslensku
neysluvatni hefur áður verið
rannsakaður og var þá áætluð hlut-
deild hans í flúortekju.
Flelstu niðurstöður mælinga voru
þær að flúor í íslenskum matvælum
er mjög sambærilegur við það sem
mælst hefur erlendis. Athygli vakti
hversu lítill flúor mældist í fiski. Eins
og áður segir hefur því oft verið
haldið fram, að fiskur væri mjög flú-
orríkur og það meðal annars hefur
gefið ástæðu til að ætla að flúortekja
Islendinga væri meiri en annarra
þjóða með sambærilegan flúorstyrk í
drykkjarvatni. Flúorstyrkur í al-
gengustu fisktegundum reyndist
vera mjög svipaður og í kjöti eða
0,2-0,3 mg/kg, en í verkaðri síld
(saltsíld, gaffalbitum, kippers)
mældist mun meiri flúor vegna smá-
beina, sem orðin eru meyr við verk-
unina og eru borðuð með.
Líklega hefur flúor í fiskholdi oft
verið ofmetinn áður vegna beina-
leifa í sýnunum. Bein eru geysilega
flúorrík og örsmá beinflís breytir
niðurstöðum umtalsvert. Athygli
vekur einnig að niðurstöður gamalla
flúormælinga á matvælum eru oft
mun hærri en nýrra og mun það vera
vegna aukinnar sérvirkni nýrra að-
ferða, sem verða því að teljast mun
áreiðanlegri.
Af einstökum matvælum er te flú-
Gróft brauð og te eru drjúgir Oú-
orgjafar.
8 HEILBRIGÐISMAL 3/1985