Heilbrigðismál - 01.09.1985, Blaðsíða 13
Borgar sig að
hætta að reykja
„Ef þú lesandi góður hef-
ur reykt í 20—30 ár er þér
ekki láandi þótt þú spyrjir.
Tekur því að hætta úr
þessu? Hef ég ekki þegar
brennt allar brýr að baki
rnér? Niðurstöður flestra ef
ekki allra rannsókna svara
þessum spurningum mjög
eindregið: Það tekur því að
hœtta og því fyrr því betra.
Fjölmargar samanburðarat-
huganir á þeim sem hætta
að reykja og þeim sem
halda áfram hafa sýnt
hversu miklu betur hinir
fyrrnefndu eru settir. Ein-
mitt vegna þess hve reyk-
ingarnar stuðla mjög að
hættulegum fylgifiskum æða-
þrengsla, blóðtappa og
hjartsláttaróreglu uppskera
þeir sem hætta mjög fljótt.
A einu til tveimur árum
minnkar hin aukna hœtta á
sjúkdómum og dauða um
helming. Síðan heldur
áhættan áfram að minnka
hægt og bítandi uns hinn
fyrrverandi reykingamaður
stendur nær jafnfætis þeim
sem aldrei hefur reykt, að
tíu til tuttugu árum
liðnum.“
Ur grein dr. Guðmundar Þor-
geirssonar „Áhrif reykinga á
hjarta og œðar“, hirt í Morgun-
blaðinu i apríl 1985.
Frumvarp til nýrra umferðarlaga:
Aukin vernd fyrir börn
Gert er ráð fyrir því að
stjórnarfrumvarp til nýrra
umferðarlaga verði lagt
fram á fyrstu vikum Alþing-
is í haust. Frumvarpið var
kynnt á þingi í vor, en að-
eins rætt lítillega.
Þetta frumvarp hefur ver-
ið í undirbúningi síðustu ár
og er samið af nefnd undir
forsæti Sigurjóns Sigurðs-
sonar lögreglustjóra. Frum-
varpið er í 17 köflum og 122
greinum. Lagt er til að ýms-
ar breytingar verði gerðar
frá núgildandi lögum, m.a.
varðandi umferðarslys sem
heilbrigðisvandamál.
Von í viðbúnaði
„Unglingar nútímans eru
ekki lakari en unglingar
fyrri tíma. Meðal þeirra vex
þeirri skoðun fylgi, að
heilsan sé of mikils virði til
að fórna henni í eitur. Ef
viðbúnaðurinn heldur
vandamálinu í skefjum,
meðan heilbrigð skynsemi
breiðist út, er fyrirhöfnin
ekki fyrir gýg.“
Úr leiðara DV, 15. júlí 1985.
• •
Oflug samtök
Alls eru 156 AA deildir
starfandi hér á landi og hver
þeirra heldur a.m.k. einn
fund í viku. Þessa fundi
sækja allt að 150 manns.
Þetta kemur fram í nýiegri
frétt frá samtökunum. Þar
segir einnig: „AA-samtökin
lofa ekki neinuni bata, en
benda má á að niikill fjöldi
fólks hefur öðlast nýtt við-
horf til lífsins eftir að hafa
kynnst AA-samtökunum og
fengið að njóta þess að
komast úr myrkri ofdrykkj-
unnar yfir í ljós og birtu
eðlilegs mannlífs, án
áfengis".
Reglur um skyldur öku-
manna gagnvart gangandi
vegfarendum eru ítarlegri
en áður. Vernd barna og
fatlaðra er aukin. Ljósatími
er ákveðinn allan sólar-
hringinn frá 1. október til 1.
apríl. Akvæði eru um 14 ára
aldursmark við akstur drátt-
arvéla við landbúnaðarstörf
og um 16 ára aldursmark til
útgáfu ökuskírteina til
aksturs vélsleða og léttra bif-
hjóla (skellinaðra, nú 15
ár).
Athygli vekur að ekki er
kveðið sérstaklega á um
heimild til að beita sektum
ef bílbelti eru ekki notuð.
Er þess að [vænta að það
mál verði tekið til sér-
stakrar athugunar við með-
Langlífi í ættinni
í byrjun ágúst 1985 lést
Anna Þorláksdóttir, á 104.
aldursári, en aðeins einn Is-
lendingur var þá eldri.
Anna var ættuð úr Skafta-
fellssýslu, en dvaldi síðustu
árin á Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi.
Þess var getið í minning-
argrein um Önnu að móðir
hennar hefði orðið 97 ára
(d. 1943) og systkini hennar
sex orðið 87 ára (tvö), 88
ára, 90 ára, 91 árs og 96 ára.
-jr-
ferð frumvarpsins í þinginu.
Skemmst er að minnast
könnunar Umferðarráðs,
sem sýnir að bílbelti eru
mjög lítið notuð hér á landi,
enda vantar sektarheimild.
Reynslan af þannig heintild
í Þýskalandi, Englandi,
Bandaríkjunum og víðar
sýnir að með því er hægt að
fækka slysum verulega.
-F-
Ekkert tómahljóð
Það eru 13 ársíðan Rauði
kross íslands hóf rekstur
söfnunarkassa, sem nú eru
170 um allt land, þar af 70 á
höfuðborgarsvæðinu. Yfir
70% tekna félagsins koma
frá söfnunarkössunum.
Fyrstu sjö mánuði ársins
1985 var heildarveltan úr
söfnunarkössunum um 29
milljónir króna.
RKÍ fréltir 5185.
HEILBRIGÐISMÁL 3/1985 1 3