Heilbrigðismál - 01.09.1985, Qupperneq 15
I þessari grein er lögð áhersla á
það að sjúklingar með hjartadrep
verði að komast sem fyrst á sjúkra-
hús. Myndin sýnir neyðarbílinn
sem rekinn hefur verið frá Borgar-
spítalanum síðustu ár, en með þvi
móti er talið að tekist hafí aö
bjarga fleirum en annars. Neyðar-
bíllinn fer að meðaltali í sex útköll
á dag, frá kl. Z.30 til 23.30, alla
daga nema sunnudaga. Minna má
á að neyðarsími fyrir sjúkraflutn-
inga á höfuðborgarsvæðinu er
11100.
lungnabjúg. Er það afleiðing hjarta-
bilunar, slælegs samdráttar hjartans.
I öðrum tilvikum er yfírlið eða
hjartastopp fyrsta einkenni hjarta-
dreps. Eins og fyrr segir þarf endur-
lífgun að hefjast innan fárra mínútna
til að sjúklingur eigi lífsvon.
Hver eru þá rétt viðbrögð ef
hjartadrep ber að höndurn? Leik-
menn og læknar ættu alltaf að láta
sér þennan sjúkdóm til hugar koma,
ef sjúklingur kvartar um verk fyrir
miðju brjósti, einkum ef verkurinn
hverfur ekki við 10—15 mínútna
hvíld eða töku nítróglyseríns. Við
þessar aðstæður er rétt að hafa tafar-
laust samband við lækni, annað
hvort heimilislækni, sérfræðing sem
hefur meðhöndlað sjúkling, vakt-
lækni að kvöldi eða næturlagi, eða
sjúkravakt á spítala. Ef einkenni eru
ótvíræð eða svæsin, á að hringja
strax á neyðarbíl. Enginn vafi er á
því, að fjölmörgum mannslífum má
bjarga með markvissum og skjótum
viðbrögðum við hjartadrepi.
Hér hefur verið lögð megináhersla
á að kynna sjúkdómseinkennin, svo
að stytta rnegi tímann sem líður áður
en sjúklingur leitar sér hjálpar. Að
lokum er rétt að hvetja til þess, að
miklu fleiri íslendingar læri endur-
lífgun. Þetta á einkum við um starfs-
fólk stofnana þar sem fjölmenni
kemur saman, t.d. sundstaða, öldur-
húsa, veitingastaða o.s.frv. Talsvert
hefur verið gert á þessu sviði, en
þörf er á miklu stærra átaki. ítrekað
skal að haft sé tafarlaust samband
við lækni eða neyðarvakt ef minnsti
grunur er um hjartaáfall. Hver mín-
úta er dýrmæt þegar þannig stendur
á.
Tilvitnunir:
1. Sigurður Guðmundsson, Þórður Harð-
arson: Flutningur sjúklinga mcd bráða
kransæðastíflu á Borgarspítalann 1972-1975.
Læknablaðið 1979;65:11-21.
2. Finnbogi Jakobsson, Helgi Sigurðsson,
Gunnar Sigurðsson: Rckstur ncyðarbíls frá
Borgarspítalanum. Læknablaðið 1985;
71:41-50.
Þórður Harðarson, Ph.D., er pró-
fessor í lyflækningum við lækna-
deild Háskóla íslands og yfirlæknir
lyflækningadeildar Landspítalans.
HEILBRIGÐISMAL 3/1985 15