Heilbrigðismál - 01.09.1985, Blaðsíða 24
dómurinn er einkennalaus uns mikil
skemmd er komin í augun. Af þeim
sökum finnst hægfara gláka ekki
nema sérstök leit sé gerð. Oftast er
sjúkdómurinn greindur þegar sjúk-
lingur kemur til augnlæknis í gler-
augnamátun eða af öðrum ástæðum.
Tölur þær sem birtast í þessu upp-
gjöri eru því lágmarkstölur. Með því
að kanna aðsókn sjúklinga til augn-
lækna í augnlækningaferðum er unnt
að sjá hversu margir hafa verið skoð-
aðir í hverjum aldursflokki á
ákveðnu tímabili. I könnun sem
gerð var í Borgarneslæknisumdæmi,
og náði til áranna 1976—82,
reyndust 80% þeirra íbúa sem voru
50 ára eða eldri nota þjónustu augn-
lækna.4
Sé gert ráð fyrir svipaðri aðsókn
til augnlækna annars staðar má gera
ráð fyrir að um 80% af allri hægfara
gláku meðal 50 ára og eldri hafi
komið í leitirnar. Út frá því má áætla
að heildarfjöldi glákusjúklinga á ís-
landi, 50 ára og eldri, í árslok 1982,
hafi verið um 2300 (um 1200 karlar
og um 1100 konur) þannig að um 4,4
af hundraði íbúa yfir fimmtugt séu
með þennan sjúkdóm.
Áðurnefnd rannsókn 1 gefur ekki
til kynna á hvaða stigi sjúkdómurinn
er, en með hliðsjón af gögnum
göngudeildar augndeildar Landa-
kotsspítala (sem nær til um þriðj-
ungs rannsóknarhópsins) má áætla
að um eitt þúsund Islendingar séu
með hægfara gláku á háu stigi, þ.e.
með skerðingu á sjónvídd og sýni-
legri skemmd í sjóntaug. Eru þetta
um 44% sjúklinganna.
Rannsóknir á nýgengi gláku,
þ.e.a.s. hversu margir nýir gláku-
sjúklingar bætast í hópinn árlega,
hafa leitt í Ijós að þeir muni vera
140—150 á ári.5 Erfiðleikum er
bundið að bera saman algengi hæg-
fara gláku í hinum ýmsu löndum
vegna mismunandi skilgreiningar
sjúkdómsins og greiningaraðferða,
en svo virðist sem sjúkdómurinn sé
álíka algengur hér eins og í Svíþjóð,
Englandi og Bandaríkjunum.
Tilvitnanir:
1. Guðmundur Björnsson: Sjóndcpra og
blinda. Fréttabréf um hcilbrigðismál
1980;28(4):7-10.
2. Guðmundur Björnsson: Hægfara
gláka. Læknablaðið 1984;70:130-1.
3. Guðmundur Björnsson, Guðmundur
Viggósson, Jón Grétar Ingvason: Gláka á
íslandi, 1. grcin: Algcngi hægfara gláku
1982. Læknablaðið 1984;70:121-9.
4. Guðmundur Björnsson: Augnhagur
Borgfirdinga. Læknancminn 1978;31:5-18.
5. Guðmundur Björnsson, Guðmundur
Viggósson, Jón Grétar Ingvason: Gláka á
íslandi, 6. grcin: Nýgcngi hægfara gláku á
íslandi. Læknablaðið 1985;71:201-4.
Grein þessi er eftir dr. Guðmund
Bjömsson prófessor, við læknadeild
Háskóla íslands og yfirlækni
augndeildar Landakotsspítala.
ORKUBOT UIJC5RA
5EM ALDI
JAFFA
OUT5PAIJ
DOLE
OUT5PAIJ
DOLE
JAFFA
EGGERT KRISTJAINISSON HF
Sundagörðum 4, simi 6S5300
24 HEILBRIGÐISMAL 3/1985