Heilbrigðismál - 01.09.1985, Side 30
Algengt vandamál
Könnun, sem gerð var á vegum
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
sýndi að vöðvaspenna í ýmsum
myndum og aðrar afleiðingar streitu
eru algengari en margan grunar.
Reyndust 61% aðspurðra þjást af
höfuðverkjum, 56% höfðu vöðva-
bólgu, 64% bakverki og 14% maga-
bólgur eða magasár.
Streita virðist vera fylgifiskur
ákveðinna starfsgreina, einkum
þeirra sem gera miklar kröfur um
viðbragðsflýti. Einnig virðist streita
algeng hjá fólki þar sem gerðar eru
kröfur um góða þjónustu, en við-
komandi ræður ekki vinnuálaginu
eins og t. d. símaverðir, lagermenn,
þjónar, gjaldkerar, afgreiðslufólk í
stórmörkuðum, flugafgreiðslumenn
og dyraverðir. Talið er að störf sem
veita litla andlega örvun valdi oft
streitu. Sama máli gegnir um hávaða
á vinnustað, einkum þegar þarf að
standa eða sitja langtímum saman og
þar sem einföld verk eru endurtekin
í sífellu. Þá hefur streitu einnig verið
kennt um léleg afköst, miklar fjar-
vistir og slysatíðni, og ennfremur
starfsleiða og slæman anda á vinnu-
stað.
Rannsókn, sem birt var árið
1981, hefur leitt í ljós að óvenju
mikið er um svonefndar sálvefrænar
truflanir meðal fiskvinnslufólks og
þá helst vöðvabólgur. Ljóst er að
þessi hópur vinnur við streituvekj-
andi aðstæður. A undanförnum
árum hafa afkastahvetjandi launa-
kerfi verið innleidd í fiskvinnslu. Ekki
virðist hafa verið tekið nægilegt tillit
til þeirra sem þurfa að vinna innan
um vélar, og jafnvel í samkeppni við
þær. Því er mikið deilt á slík kerfi og
þeim fundið flest til foráttu. Þegar
rétt er á haldið geta bónuskerfi bæði
verið til hagsbóta fyrir launþega og
vinnuveitendur. Mikilsvert er að láta
manninn ekki skipa lægri sess en
vélbúnað. Það þarf að skapa mann-
iegt vinnuumhverfi, ella þarf að
gjalda fyrir með miklum fjarvistum
úr vinnu, veikindum og lélegum
vinnuafköstum.
Spennuviðbrögð
Við bregðumst við spennu í dag-
lega lífinu á fjóra vegu.
I fyrsta lagi tilfínningalega, t.d.
með leiða eða reiði.
í öðru lagi með atferli okkar. Við
eigum erfitt með að einbeita okkur,
verðum gleymin og afköstin minnka.
í þriðja lagi verður breyting á lík-
amsstarfseminni eins og áður er lýst
(hjartsláttur, vöðvaspenna, andar-
dráttur o.fl.).
I fjórða lagi eiga sér stað breyting-
ar á hugsun okkar.
En allt er þetta innbyrgðis tengt.
Þegar við spennumst upp reynum
við að skilja orsökina, en þegar það
tekst ekki, verðum við hrelld og
spennumst við það ennþá meir. Til-
# Líkaminn bregst við streitu eins og bráðri hcettu
# Stöðug spenna getur valdið vöðvagigt
# Afleiðingar streitu eru algengari en œtla mœtti
# Sá sem er spenntur reynir oft að halda spennunni við
# Nokkur streita er gagnleg og eykur hœfni manna
# Spenna getur dregið úr ónœmisvörnum líkamans
# Mestu streituvaldarnir eru fráfall maka og skilnaður
# Líkamsrœkt og slökun eru góð ráð við streitu
30 HEILBRIGÐISMAL 3/1985