Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 13

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 13
blóði en þau eru talinn viss mæli- kvarði á áfengisneyslu. Virðast augu Dana vera að opnast fyrir mikilli áfengis- og tóbaksneyslu þjóðarinnar, nokkuð sem nágranna- þjóðum hefur þótt augljóst um all- langt skeið. Svíar sögðu frá skemmtilegri at- hugun á því hvernig læknar skynj- aðu eigin líkama og heilsu. Þegar sjúklingar streyma stöðugt til lækna með ýmis einkenni og kvart- anir komast læknar ekki hjá því að skynjun á líkama og einkennum breytist eða þróast. Þetta hefur áhrif á afstöðu læknisins til hinna daglegu verkefna sem hann verður að leysa, og þar með áhrif á viðmót hans til sjúklinga. í ljós kom að læknar skynja eigin líkama á mis- munandi hátt. Rannsóknin heldur áfram og mun þá beinast að því að kanna hvort munur sé á meðferðar- úrræðum hjá þessum mismunandi hópum lækna. Bjarni Jónasson læknir í Garðabæ kom með óvenjulega kynningu á vinnudegi heimilislæknisins. Hann ræddi um spaugsemina í heimilis- lækningum, greindi frá mikilvægi þess að átta sig á henni í gráma hversdagsleikans og notaði til þess ýmsar spaugilegar myndir af þekktum teiknuðum persónuleik- um. Þótt erindið teldist ekki til vís- indalega hluta þingsins komust færri að en vildu og vakti umfjöll- unin mikla athygli. Háskólinn og heilsugæslan í Turku í Finnlandi hafa gert athygl- isverða athugun á sambandi fjár- hagsstööu og höfuðverkjar. í ljós kom að endurtekinn höfuðverkur var mun algengari hjá konum (9%) en körlum (4%). Höfuðverkur í eldri aldurshópum var algengari en hjá þeim yngri. Höfundarnir fundu greinilegt samband milli bágrar fjárhagslegrar stöðu sjúklinga og höfuðverkja, án þess að geta fullyrt hvað var orsök og hvað afleiðing. Frá heimilislækningadeild há- skólans í Osló var kynnt rannsókn á afdrifum um hundrað manna sem urðu atvinnulausir árið 1987 þegar skipasmíðastöð í norskum bæ var lokað. Þetta leiddi til þess að marg- ir voru skráðir sem öryrkjar. Kom í ljós að heilsufar þeirra 82 sem enn voru lifandi af 97 sem fóru á ör- orkubætur var gott og þeir voru ánægðir með stöðu sína. Margir hefðu án efa getað haldið áfram í vinnu, hefði hún boðist. Fyrstu árin reyndust erfið, einkum hjá þeim yngri. Norskar reglur um örorku hafa nú verið hertar og töldu höf- undar líklegt að fjórðungur hópsins hefði ekki fengið örorkuumsóknir sínar samþykktar nú. Margir fyrirlestrar fjölluðu um sýkingar og notkun sýklalyfja. Hefur greinilega verið lögð mjög rík áhersla á þetta vandamál alls staðar á Norðurlöndunum. Notkun sýkla- lyfja hefur skapað fleiri vandamál en hægt var að sjá fyrir í byrjun, þótt gagnsemi þeirra sé ótvíræð í réttum tilvikum. Aukin tíðni ónæmra sýkla hefur haft áhrif á þessa umræðu. Voru kynntar marg- ar rannsóknir sem miðuðu að bættri greiningu og meðferð sýk- inga, sem alls staðar er stór hluti vinnu heimilislækna. Á tíu málþingum var fjallað um hin fjölbreytilegustu málefni, rann- sóknir á aðferðafræði, sýkingar, gæðarannsóknir, viðhaldsmenntun og fleira. Mikla athygli vakti mál- þing um fjarlækningar þar sem ís- lenskir læknar tóku mikinn þátt. Var sýnt á tjaldi um leið og læknir á sviðinu leiðbeindi um skoðun á nefkoki sjúklings á læknastofu í Skövde í Svíþjóð. Telja margir að fjarlækningar eigi eftir að skipa stóran sess í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifbýli. Á þetta ekki síst við um ísland. Ljóst er þó að fjar- lækningar leysa ekki nema lítinn hluta vanda heilbrigðisþjónustu. Þingið þótti takast vel þrátt fyrir mikinn fjölda þátttakenda, enda lék veður við gesti allan tímann. Sam- komur af þessum toga eru mjög mikilvægar í öllum fræðigreinum, þær eru hvati til vísindavinnu og nauðsynlegur vettvangur til að koma henni á framfæri. Þingin efla innra starf greinarinnar í viðkom- andi landi, undirbúningsvinna tek- ur mörg ár og virkjar stóran hóp manna. Þau eru nauðsynlegur þátt- ur í eðlilegri framþróun fræði- greina og sjúklingum því til mikilla hagsbóta þegar á heildina er litið. Sveinn Magnússon er heilsugæslu- læknir í Garðabæ og héraðslæknir Reykjaneslæknishéraðs. Hann var rit- ari þings heimilislækna. HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 13

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.