Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 20
sig skapað skilyrði fyrir heilsuvernd með
því að draga úr atvinnuleysi, minnka
slysatíðni og upplýsa þegnana. Þetta sýnir
hve erfitt getur verið að eyrnamerkja sér-
staklega þá fjármuni sem nýtast til heil-
brigðismála. Einn mikilvægasti þáttur heil-
brigðisstefnu eru forvarnir og þær verða
ekki skipulagðar af skynsemi nema heild-
stætt mið sé tekið af sem flestum þáttum
samfélagsins. Segja má að hæpinn ávinn-
ingur gæti orðið af því fyrir heilbrigði
þjóðarinnar ef framlög til heilbrigðismála
væru aukin á kostnað menntamála, svo
dæmi sé tekið, því fólk er færara um að
taka ábyrgð á eigin heilsu eftir því sem það
er betur menntað.
Lög um réttindi sjúklinga hafa nýlega
öðlast gildi. Þar er staðfestur réttur lands-
manna til fullkomnustu heilbrigðisþjón-
ustu sem tök eru á að veita á hverjum tíma.
Til að þessi réttur verði raunverulegur er
ljóst að hætta verður þeim handahófs-
kenndu niðurskurðaraðgerðum sem beitt
hefur verið á undanförnum misserum.
Samt sem áður er afar brýnt að setja heil-
brigðisþjónustu skynsamleg mörk því fjár-
magn er takmarkað og það ber að nýta eins
vel og mögulegt er. í þeirri stöðu sem skap-
ast hefur, þar sem eftirspurn eftir þjónustu
er meiri en framboð á henni, er allra mikil-
vægast að tryggja sanngjarna dreifingu
Afar brýnt er að
setja heilbrigð-
isþjónustu
skynsamleg
mörk því fjár-
magn er tak-
markað og það
ber að nýta eins
vel og mögulegt
er.
Gön g udeildjyrir
psoriasissjúklinga
Býóur upp á:
• Afnot af sérstakri meSferðarlaug og aðstöðu.
• Slökun i notalegu umhverfi.
• Hinn einstaka Bláa Lóns kísil og rakakrem.
• UVB Ijós og UVB Ijósagreiðu.
• Eftirlit hjúkrunarjrœðinga og húðlœkna.
takmarkaðra gæða heilbrigðisþjónustunn-
ar. Það verður ekki gert með því að raða
einstökum verkefnum í forgangsröð, held-
ur með því að endurskipuleggja heilbrigð-
iskerfið og kortleggja þau áherslusvæði
sem hún á einkum að sinna. Það kann að
fela það í sér meðal annars að greina verði
á milli heilbrigðisþjónustu sem greitt er
fyrir af almannafé og þjónustu sem ein-
staklingar greiði að mestu fyrir sjálfir. En
allar slíkar ákvarðanir verða að lúta sið-
fræðilegum og faglegum viðmiðunum og
þær þarf að ræða vel meðal almennings.
í ljósi þessara atriða legg ég til að í þeirri
umræðu sem nauðsynlegt er að fari fram
um úrbætur á vanda heilbrigðisþjónust-
unnar verði fremur talað um heilbrigðis-
stefnu en forgangsröðun. Og þetta er ekki
bara spurning um orðalag og hugsunar-
hátt, því takist okkur að móta skynsamlega
heilbrigðisstefnu getum við komist hjá
mörgum þeim óheillavænlegu ákvörðun-
um sem forgangsröðun gæti falið í sér.
Vilhjálmur Árnason heimspekingur, Ph. D.,
er dósent í heimspeki við Háskóla íslands. Áður
hafa birst greinar eftir hann í Heilbrigðismál-
um um kostnað við heilbrigðisþjónustu (1/
1993), frelsi einstaklinga (2/1993), hamingju
(2/1995), upplýsta sjúklinga (1/1996) og heil-
brigði (2/1996).
Húðverndarvörur
• Kísileója
• Baðsölt
• Rakakrem
Hreinsa, afhreistra,
mýkja og nœra húðina.
Fást í apótekum og heilsubúðum
um allt land.
BLUE LAGOO
4-
fj
Muniá áœtlanajeróir úr Keykjavík
V e r i ó velkomin • B I á a L ó n i ð hf. • S í m i 42 6 8 800. • F a x 4 2 6 8 8 8 8.
20 HEILBRIGÐISMÁL 1/1997