Heilbrigðismál - 01.03.1997, Page 17
íslands • Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands • Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands
um tóbaksvarnir og þeir aðstoðaðir
eftir mætti.
Nokkur halli varð á rekstri
Krabbameinsfélagsins á síðasta ári.
Byggist það m.a. á því að ekki var
um að ræða eins stórar gjafir og ár-
in á undan. Starfsmenn félagsins
eru um áttatíu í 62 stöðum.
Sigríður Arnardóttir og Þuríður
Bachman komu inn í fimmtán
manna stjórn Krabbameinsfélags
íslands í stað Elfu-Bjarkar Gunnars-
dóttur og Ragnars Pálssonar. For-
maður félagsins er Jón Þorgeir
Hallgrímsson en aðrir í fram-
kvæmdastjórn eru Ingi R. Helga-
son, Jónas Franklín, Sigríður Lister
og Sigurður Björnsson.
í kjölfar aðalfundarins var efnt til
fræðslufundar um líkn, en nú eru
tíu ár síðan Heimahlynning Krabba-
meinsfélagsins tók til starfa og rætt
er um að opna sérstakt líknar-
heimili. -jr.
Átakið „Berjumst gegn brjósta-
krabbameini" var kynnt í apríl í
tengslum við tískusýningu Joe
Boxer. Eigandinn, Nicholas Gra-
harn, var viðstaddur. Hér er hann
ásamt Hólmfríði Karlsdóttur og
Maríu Ellingsen, sem báðar eru á
veggspjöldum sem gerð hafa verið
vegna átaksins, Vigdísi Finnboga-
dóttur verndara Krabbameinsfé-
lags íslands og Guðrúnu Agnars-
dóttur forstjóra félagsins.
Jón Þorgeir Hallgrímsson yfir-
læknir, formaður Krabbameinsfé-
lags íslands, flytur skýrslu stjómar
á aðalfundi félagsins í maí. Fund-
urinn var haldinn í nýjum sal í
húsi félagsins að Skógarhlíð 8.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 17