Heilbrigðismál - 01.03.1997, Page 19

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Page 19
Sigurður Stefán /ónsson brýnast er að leysa, en þar á ég við meðferð fjármuna í heilbrigðiskerfinu og skipulag þjónustunnar. Mér finnst það athyglisvert að læknar sem barist hafa hatrammlega gegn viðleitni stjórnvalda til að bæta skipulag heilbrigðisþjónustunnar - svo sem til að efla heilsugæsluna en draga úr þjónustu sérfræðinga - ganga fúslega í lið með stjórnvöldum þegar ræða skal for- gangsröðun. Þetta bendir til þess að læknar styðji frekar aðgerðir sem kunna að bitna á sjúklingum en skipulagsbreytingar sem kynnu að hrófla við forréttindum þeirra sjálfra. Sé gengið út frá þeirri forsendu að hlutverk heilbrigðisþjónustu sé að efla heil- brigði og berjast gegn sjúkdómum, þá fer vart á milli mála að leita verði allra leiða til þess að endurskipuleggja heilbrigðiskerfið og hagræða í rekstri þess áður en farið er að neita lasburða fólki um heilbrigðisþjón- ustu. Þetta felur í sér að ekki má ganga út frá því að spilin séu rétt gefin áður en farið er að forgangsraða. Ef vitlaust er gefið er upphafsstaðan röng og því verður að huga að möguleikum þess að stokka kerfið upp áður en settar eru fram tillögur um hvaða sjúkdómstilvik eigi að hafa forgang og hver eigi að sitja á hakanum. í þriðja lagi kann umræða um forgangs- röðun í heilbrigðiskerfinu að beina sjónum okkar frá meðferð opinbers fjár á öðrum sviðum þjóðltfsins. í þessu ljósi er það athyglisvert að sá stjórnmálaflokkur sem hæst hefur lát- ið um sóun í almannafjár í landbúnaðinn hafi einbeitt sér að atlögum að heilbrigðis- kerfinu þegar á reyndi. Áður en gengið er lengra í niðurskurði í heilbrigðiskerfinu eða tekin upp forgangsröðun innan þess verða stjórnmálamenn að gera það upp við sig hvort þeir ætla - svo dæmi séu tekin - að láta sérhagsmuni bænda og útvegs- manna ganga fyrir hagsmunum almeim- ings. Það er óverjandi að draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu - sem ótvírætt þjónar almannahag - meðan sóun almannafjár í þágu þröngra sérhagsmuna viðgengst á öðrum sviðum samfélagsins. Því er oft haldið fram að þjóðin geti ekki leyft sér að eyða stærra hlutfalli útgjalda sinna til heilbrigðisþjónustu. Ljóst er að ákveðið verðmætamat liggur þessari af- stöðu til grundvallar. Það stendur hvergi skrifað í skýin hversu hátt þetta hlutfall á að vera og þjóðin - valdhafinn í lýðræðis- ríki - hefur aldrei verið spurð að því eða Óskipulegar sparnaðarað- gerðir hafa leitt til þess að bið- listar eftir að- gerðum lengjast stöðugt og heil- brigðisstarfsfólk býr víða við óviðunandi vinnuaðstöðu. gert það upp við sig. Ýmsar vísbendingar eru um að almenningur sé reiðubúinn að halda uppi öflugu heilbrigðiskerfi. Samt hafa óskipulegar sparnaðaraðgerðir leitt til þess að biðlistar eftir aðgerðum lengjast stöðugt og heilbrigðisstarfsfólk býr víða við óviðunandi vinnuaðstöðu. Það er þó góðs viti að forsætisráðherra gat þess í þjóðhátíðarávarpi sínu að sækja bæri fram í heilbrigðismálum, jafnframt því sem hann hvatti réttilega til aukinnar hagsýni. Einn vandinn er sá að stjórnarhættir í þessu landi koma skipulega í veg fyrir að lýðræði nái fram að ganga. Stór hluti þing- manna stundar skammsýna fyrirgreiðslu- pólitík sem gerir það að verkum að fjár- munum er oft sóað í verkefni sem nýtast illa fyrir þjóðarheildina. Þetta á bæði við um það fjármagn sem fer til annarrra mála- flokka en heilbrigðisþjónustu og um upp- byggingu heilbrigðisþjónustunnar sjálfrar þar sem margar óskynsamlegar ákvarðanir hafa verið teknar. Hér verður líka að hafa í huga að fjár- magn til ýmissa annarra málaflokka en heilbrigðisþjónustu getur eflt heilbrigði og dregið úr sjúkdómum meðal landsmanna. Öflugt atvinnulíf, öruggar samgöngur og gott menntakerfi geta til dæmis hvert um HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 19

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.