Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 28

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Blaðsíða 28
Tómas Jónasson Um ólánsleiðir að hamingjunni Grein eftir Róbert H. Haraldsson „Ef ég væri heiðingi og pyrfti að gera mig skiljanlegan á grísku, myndi ég segja að Cuð hafi hagað sköpunarverki sínu þannig að það yrði honum sjálfum til sem mestrar skemmtun- ar; líkt og maður sem leggur beikonsneið á músagildru og fylgist síðan með þeim klóku brögðum sem mýsnar beita til að ná beikoninu án þess að festast í gildrunni, þannig horfir Guð á hopp og skopp og bopp þeirra milljóna manna sem reyna að næla sér í bita afsannleika án þess að þjást - og hann skemmtir sér kon- unglega." Soren Kierkegaard. Hver eru tengsl hamingju og heppni? Það eitt að brydda upp á þessu umræðu- efni virðist ávísun á óhamingju, að minnsta kosti er einkar auðvelt að missa fótanna þegar leitað er svara við spurningunni í heimi fræðanna - þar sér varla handa skil í skafrenningi hugtaka og ótal kenninga um hamingju. Þó grillir í kennileiti af vettvangi dagsins sem virðist mega taka mið af: Heppnin (óheppnin) er ekki öll þar sem hún er séð! Stundum er fall fararheill (stundum ekki), greiði getur orðið bjarnar- greiði og oft eygja menn lán í óláni. Er þetta til marks um skyldleika andstæðn- anna, að þær spretti jafnvel hvor úr ann- arri: Ólán verði að láni, lán að óláni? Hvernig má það vera? Og hvað segði það okkur um gagn og ógagn óhamingju fyrir lífið? Dæmi um ólán Vert er til glöggvunar að skoða nokkur dæmi. Ég byrja á einföldu, tilbúnu dæmi en fikra mig í átt að flóknari dæmum og enda á raunverulegu dæmi. Til hliðsjónar hef ég eina forsendu sem skýrir hvernig ég nota orðalagið „að ólán verði að láni". Ef ólán verður í reynd að láni þá verður mað- ur að vilja ólánið sem sh'kt en ekki bara lánið sem af því hlýst, eða með öðrum orð- um, það að vilja lánið er að vilja ólánið - eða með enn öðrum orðum, ef ólán verður að láni mun aðgætinn maður skilja að úti- lokað er að vilja lánið án ólánsins, slíkt væri eins og að vilja timburhús úr ein- hverju öðru en timbri. Dæmi i: Maður sem lendir í bílslysi formælir óláni sínu en huggar sig við að það hafi verið lán í óláni að hann var á gamla en ekki nýja bílnum sínum. Þótt hér sé notað hið kunnuglega orðtak „lán í óláni" er rangt að segja að ólánið hafi orðið að láni. Ólánið er ólán þótt tilhugs- unin um ennþá stærra ólán kunni að breyta afstöðu þolandans til þess, jafnvel verulega ef hið mögulega ólán er mikið eða líklegt og öðrum augljóst (hann gæti hafa verið nýbúinn að keyra öll börnin sín á leikskólann). Vart er til það óhapp sem menn geta ekki gert léttbærara með því að sjá í því mögu- leika á ennþá stærra óláni sem hefði getað orðið en varð ekki. Sá sem glatar aleigunni huggar sig við að hann er þó heilsugóður, sá sem tapar heilsunni huggar sig við að eiga fjölskyldu, sá sem tapar fjölskyldunni huggar sig ef til vill við að hafa ekki gengið af vitinu og sá sem tapar vitinu gæti hugg- að sig við að vera ekki eins og hinir! í slíkum tilvikum er stundum freistandi að segja að með hjali sínu um lán í óláni sé hinn óheppni að sleikja sárin, beina sjónum sínum frá hinni raunverulegu ógæfu. Orðalagið „lán í óláni" er því alls ekki sam- bærilegt við orðalag mitt um að ólán verði að láni. Dæmi 2. Óhappið veldur því að bílstjórinn missir afflugvél sem ferst síðan. Heppnin (óheppnin) er ekki öll þar sem hún er séð! Stundum er fall fararheill (stundum ekki), greiði getur orðið bjarnar- greiði og oft eygja menn lán í óláni. 28 heilbrigðismál 1/1997

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.