Samtíðin - 01.09.1934, Side 19
S AMTÍÐIN
— Sú hlið hefir ekki verið rædd
hér, vegna þess að tilgangur
greinarinnar var sá, að ræða þá
hlið á þessu máli, er snéri að í-
þróttamönnum sem keppendum.
— Jafnframt hefir verið sýnt
fram á, að þessi sterka driffjöð-
ur vinnur því að eins, að tak-
markinu, að þeim undirbúnings-
skilyrðum sé fullnægt, sem í-
þróttakappleikar krefjast. Ef
þeim skilyrðum er ekki fullnægt,
vinnur þessi orkulind gagnistætt
tilgangi sínum og vinnur einstakl-
ingnurn og íþróttunum í heild
sinni hin herfilegustu spellvirki.
I þessari grein er ekki rúm
til að ræða verklegan undirbúning
íþróttamannsins undir kappleik,
— enda ekki tilgangurinn með
greininni, — það heyrir undir í-
þróttakennarann. En að endingu
vil ég taka fram nokkur atriði
um viðhorf íþróttamannsins og
siðferðislega afstöðu hans gagn-
vart íþrótt sinni; atriði sem eiga
við altaf og alstaðar og hverjum
iþróttamanni er holt að hugfesta
og breyta eftir.
Byrjið ekki að æfa undir kapp-
leika, fyr en nokkuð er liðið á
kynþroskaárin — 15—16 ára er
nógu snemt. Fram að þeim tíma
á að iðka alhliða, uppbyggjandi
leikfimi og íþróttir, án mikillar
áreynslu.
Takið æfinguna alvarlega og
kerfisbundið og kappleikinn
kvíðalaust og með horskum huga.
Látið þjálfunarreglumar ekki
fjötra ykkur um of, hvorki and-
lega né líkamlega. Minnist þess,
að æfingin á að auka ykkur þrek
og um leið að veita ykkur á-
nægju, en ekki að verða ykkur
óljúf skylda. Ef þér finnið, að
eldur áhugans, sem brann svo
bjart í fyrstu, er tekinn að
dvína, þá hvílið ykkur um stund,
því að líkindum hefir æfingin þá
verið of erfið. En takið þessa
hvíld sem hluta af æfingunni,
sem óhjákvæmilegan milliþátt —
umfram alt ergið ykkur. ekki yfir
þessu, því það dregur úr hinum
góðu áhrifum, sem hvíldin veitir.
Jafnvel það, að „slá sér dálítið
út“, sem kallað er, getur haft hin
bestu áhrif, því það „leysir“ hug-
ann, ef æfihgareglurnar hafa
fjötrað hann um of. Minnist þess
ætíð, að hvíldin er hluti af í-
þróttalegum undirbúningi hvers
íþróttamanns, en ekki einskisverð
tímaeyðsla. Hagið henni því
þannig, að hún komi að sem
fylstum notum. 8—9 kl.tíma
svefn á hverri nóttu í hreinu og
loftgóðu herbergi er besta hvíldin.
Nudd og elting á vöðvum er á-
gæt og hefir verið kölluð „sam-
þjöppuð hvíld“. Hún hjálpar
líkamanum til að losa sig við
þreytuefnin og eykur þjálfþol
hans. En eftir því sem íþrótta-
maðurinn þolir meiri æfingu sér
að skaðlausu, eykst afreksgeta
hans að sama skapi. Leggið
stund á fagran limaburð og feg-
urð og mýkt í hreyfingum.
17