Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 10

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 10
8 SAMTÍÐIN elska hann í saklausri einlægni, leik- ur hann sér að því að draga hana á tálar, enda þótt honum þyki nú vænt um hana. Taki konan hans, sem hon- um þykir ekkert vænt um, upp á því að gerast honum ótrú, ætlar hann al- veg vitlaus að verða. En hann lætur sér fremur fátt um það finnast, þó að sú kona, sem hann elskar, en er ekki gift honum, bregðist honum, því að þá þurfti hégómadýrð hans ekki að óttast almenningsálitið. — — — Konur eru mjög hugrakkar, þegar á það reynir, að þær þurfa að viður- kenna ást sína til einhvers manns. Karlmenn eru fjarska hugrakkir, þegar þeir eru að þræta fyrir það, að þeir elski ástmeyjar sínar. Og blessuð börnin, sem getin eru utan hjónabands, þessir vesalingar; ekki er þeim til mikils að treysta feðrum sínum. Hjónabandsbörnin ein, og önnur ekki, megna að vekja hátíð- lega föðurást hjá karlmanninum. Hjá konunni lúta öll þægindi í lægra haldi fyrir heilbrigðri eðlishvötinni, og venjulega leggur hún óskilgetna barnið að brjósti sér, þegar faðir þess sver fyrir, að hann eigi það . . . — Heldurðu nú, að Rolf Gillner sé einhver heilagur engill í samanburði við þessa menn? — Það var ég ekki að segja. Ég var að tala um þessi efni alment. En hver sem vill má draga þá ályktun, að Rolf Gillner sé ekki betri en þeir menn, sem virðast skárri en hann. Ég álít, að Rolf Gillner sé eftir- tektarverður maður, hélt Helga áfram, — þó að ekki sé nema vegna þess, hve afskaplega hann er ein- mana. — Einmana, innan um allan þenn- an aragrúa af kvenfólki, sem þyrp- ist að honum? — Já, einmitt innan um þær allar. Hefurðu ekki veitt því athygli, hve mikill einstæðingur hann er? Sérhver dráttur í svip hans, sérhver hreyfing hans og bros ber vott um einstæð- ingsskap hans. — Þú gleymir einu, mælti Sonja. — Til þess að menn séu einmana, verða þeir að uppfylla eitt skilyrði. — Hvaða skilyrði er það? — Þeir verða að hafa mannlegar tilfinningar. —- Hver segir, að hann hafi ekki mannlegar tilfinningar ? — Ég! ansaði Sonja skýrt og skor- inort. Það varð stutt þögn. — Hvað hefur hann annars gert á hluta þinn? spurði Helga að lokum. — Ekkert, ég get ekki sagt, að ég þekki hann, mælti Sonja og ypti öxl- um. Þær voru búnar að borða. Helga leit á klukkuna og spratt á fætur. —- Ég má ekki vera að því, að drekka kaffi. — — — Verður þú eftir? — Já, ég verð eftir og fæ mér kaffisopa. Nokkrir gestir höfðu komið inn og sest langt frá borðinu, sem Sonja sat við. Þjónn nokkur gekk fram og aft- ur um salinn og hélt á bakka; hann hafði sint manninum, sem sat inni í stúkunni skamt frá Sonju. Nú var hann áreiðanlega að drekka kaffi eins og hún. — Hvers vegna afneitaði ég Rolf Gillner? hugsaði hún með sjálfri sér

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.