Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 25

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 25
SAMTÍÐIN 23 Hve mikið þurfa landbúnaðarafurðirnar að aukast árlega? [Eftirfarandi grein er lausleg þýðing á smákafla úr stórri og merkri bók um landbúnaðinn í heiminum, sem út kom í Danmörku í fyrra. Nefnist bókin á dönsku: Verdens Landbrug og er eftir B. Kampp, kunnan búvísindamann, sem árum saman hefir verið í þjónustu utanríkisráðuneytisins danska. Bókin er rúmar 500 blað- • siður (verð kr. 7.80) og er henni skipt í fjöldamarga kafla, þar sem rætt er um landbúnað alment frá landfræðilegu og hagfræðilegu sjónarmiði. En nálega helmingur bókarinnar fjallar um landbúnað einstakra landa.] Öldum saman hefir sú spurning við og við vaknað, hvort unt muni vera að veita hinum sífjölgandi íbú- um jarðarinnar nægilegt viðurværi. Þegar svo ber við, að uppskeru- brestir af náttúrunnar völdum eða styrjaldir, verkföll o. fl. óþurftir af mannavöldum orsaka hungursneyð, sem strádrepur miljónir manna, fara menn að halda, að Malthus (enskur hagfræðingur, sem uppi var 1766— 1834) hafi haft nokkuð til síns máls. En hann setti fram þá kenningu, ein- mitt er óáran mikið var í mannfólk- inu, að alt of margir menn væru á jörðunni (Essay on the Principle of Population). Því taldi hann, að það væri ekki nema eðlilegt, að nokkur hluti mannkynsins hlyti að deyja úr sulti og seyru, af því að aukning mat- vælaframleiðslunnar gæti ekki orðið jafnör og fólksfjölgunin í heiminum. Á fyrstu árunum eftir heimsstyrj- öldina heyrðust raddir um það, að iandbúnaðurinn mundi jafnan eiga örðugt með að fullnægja neysluþörf fnannanna. En offramleiðsla síðustu ára á öll- um landbúnaðarafurðum virðist hafa sýnt og sannað, svo að ekki verður um vilst, að ekki sé skortur á landi til ræktunar. Og það þarf ekki að fara í neinar grafgötur til þess að ganga úr skugga um, að hægt sé að auka matvöruframleiðslu heimsins óendan- lega mikið frá því, sem nú er. Sú staðreynd, að mannkyninu f jölg ar að meðaltali um alt að 10—15 miljónum árlega (þetta er auðvitað ýmsum breytingum háð eftir því, hvernig ástandið er á hverjum tíma og eftir því, hver lönd eiga hlut að máli), og að alt þetta fólk verður að fæða, er í sjálfu sér ærið alvarlegt umhugsunarefni. Ef gert er ráð fyrir, að þá ha. af akurlendi þurfi að meðaltali til þess að fullnægja neysluþörf eins manns, mundi láta nærri, að árlega þyrfti að brjóta að minsta kosti 5 miljónir ha. af nýju landi til ræktunar, eða land- flæmi, sem er stærra en alt ræktað land í Danmörku. Á öldinni, sem leið, var vafalaust

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.