Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 19 inu, en í janúar, febrúar og mars yrði haldið uppi ferðum með vetrar- íþróttafólk. En það þarf víðtæka aug- lýsingastarfsemi til þess að koma þessu í kring. í apríl og maí ætti svo að nota skipið til ferða fyrir ís- lendinga til Miðjarðarhafsins eða eitthvað suður á bóginn. Þetta mál er svo mikilvægt, að sjálfsagt er að athuga það. Ef ein- hver kemur með betri tillögur um þetta, er slíkt vitanlega æskilegt, en hitt er nauðsynlegt, að þetta mál sé sem allra fyrst rannsakað til hlítar. E. P. B. Gestrisni Eskimóa. Gestrisni Eskimóa er við brugðið. Með- al þeirra gengur maður undir manns hönd til þess að auðsýna gestum alla þá vin- semd og alúð, sem unt er að láta þeim í té: Einn þeirra færir gestinum selkjöt í íláti, sem okkar á milli sagt, sést naumast hjá okkur nema í svefnherbergjum. Ann- ar færir gestinum þvottaskál, svo að hann geti þvegið sér um hendurnar, eftir að hann hefir etið selkjötið með fingrunum. Og sá þriðji færir gestinum tusku, svo að hann geti þerrað hendur sínar. Gestum er ekki leyft að sofa einum, og er þeir eru lagstir til hvíldar á silluna þar, sem þeim er ætlað að sofa, bíða þeir þess með eftir- væntingu, hver verði sendur til þeirra til þess að sofa hjá þeim. Getur það brugðist til beggja vona, hvort rekkjunautur þeirra verði karl eða kona, ungur maður eða gamall. Jafnskjótt og gesturinn hefir af- klæðst, kemur kvenfólkið og hirðir fötin hans, burstar þau, snýr þeim við og hengir þau síðan upp til þerris. (Cornhill Magazine.)

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.