Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 27

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 27
SAMTÍÐIN 25 ræktað miklu meira en þetta árlega, er tekið var að brjóta hinar geysi- miklu lendur í Ameríku og Ástralíu til ræktunar. Og sama máli gegnir um land það, sem ræktað hefir verið á þessari öld, þar til nú á síðustu ár- um. Þannig hefir samkvæmt alþjóða- hagskýrslum samanlagt flatarmál hveiti-, rúg-, bygg-, hafra-, maís-, kartöflu- og baðmullarekranna í heiminum aukist frá 402 miljónum ha., sem var meðaltalið á árunum 1909—’13, upp í 466 miljónir ha. ár- ið 1920. En þessi aukning nemur meira en 6 milj. ha. árlegri stækkun þessara ekra, enda hefir afrakstur þeirra numið miklu meii-a en sem svarar fólksfjölguninni í heiminum. Hins vegar hefir komið í ljós, að nóg landrými er enn í heiminum. Það er því ekki ástæða til að óttast, að jörðin sé að verða of lítil til þess, að hún geti fætt mannkynið. Reynslan hefir líka fyrir löngu sýnt og sann- að, að aukning landbúnaðarafurð- anna stafar ekki einvörðungu af því, að nýtt land sé brotið til ræktunar, heldur einnig af hinu, að ræktunar- aðferðirnar hafa tekið endurbótum. Af hverju stafar feg- urð kvenna? Fyrrum þóttu þær konur fegurstar, sem nálguðust það að vera eins og grískar gyðjumyndir. Nú er þetta viðhorf breytt. Sumir telja það til bóta og álíta, að það beri vott um, að menn telji hina ytri feg- urð ekki einhlíta. Þeir hinir sömu halda því fram, að nú á tímum sé sú ein kona fögur, er eigi sér persónuleik, innri glóð, er vermi þá, sem skipta orðum við hana. ,,Hver er lengur að fást um það, þótt munnur eða úlfliður sé í stærra lagi og konan sé eilítið kinnfiskasogin, ef hún er gáfuð?“ segja þessir sömu menn.Þeir álíta, að reglulegt andlit, sem oft er kallað frítt, beri vott um kuldalegt skapferli og segja að lokum: „Fegurð kvenna nú á dögum stafar að hálfu leyti af göfugu skapferli konunnar, að einum fjórða af eðlisfríðleik hennar og að einum fjórða af fegrunartækni nú- tímans“. í héraði einu í Kína er það siður á heimilum ríkismanna, að kasta beinum úr hænuungum og olíuviðarfræjum yfir axl- ir gestanna og láta þau falla á gólfið. Er það þá metið til hæversku, ef gestirnir láta í ljós, að húsbóndinn muni vera auð- ugur og muni hafa nóg af vinnufólki til þess að hreinsa gólfið eftir að máltiðinni er lokið. (Public Speaking.) Þegar viS erum í þann veginn að sofna, er sál okkar móttækilegust fyrir áhrif- um. Framsækinn maður hlýtur aS nytfæra sér þetta. Þegar hann er a<S sofna, mun hann ekki hugsa um annaí en þaS, sem gott er og heilbrigt og fyllir huga hans gleði og hugdirfS. Luther H. Gulick.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.