Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 29

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIN 27 Þegar neyðin er stærst — í Ameríku er nýlega út komin at- hyglisverð bók, sem fjallar um afrek loftskeytamannanna á helstu stór- skipum, sem farist hafa á þessari öld. Heitir höfundur bókarinnar Karl Baarslag, en bókina nefnir hann: S 0 S t o the R es c ue. Þegar skip ferst, er skipstjóranum að maklegleikum þakkað það, ef far- þegar og skipshöfn kemst lífs af. En hvernig hefði einatt farið, ef ekki hefðu verið loftskeytatæki og ötulir loftskeytamenn um borð. Því svarar þessi nýja bók Baarslags. Hún vekur frá gleymsku afrek nokkurra loft- skeytamanna, sem fórust eftir að hafa kallað á hjálp öðrum til björg- unar. Frú Þorgerður fékk sér nýjavinnu- konu á dögunum, af því að sú gamla hafði verið látin fara. Fyrsta kvöld- ið, sem nýja stúlkan var á heimilinu, var dyrabjöllunni hringt. Stúlkan fer til dyra, og þar stendur þá húsbóndi hennar með ákaflega fallegan blóm- vönd, sem hann biður stúlkuna að af- henda frú Þorgerði og segir um leið: — Viljið þér svo segja frúnni, að mig langi til að tala við hana undir eins. — Já, ansar stúlkan, sem þekkir ekki húsbóndann, — en ég held, að þíð ættuð að flýta ykkur, því að frú- in á von á karlinum sínum á hverri stundu. Thule Barna-tryggingar með þeim hœlti, ad iðgjöld falla niður ef sá er biður um tnjgginguna (uenju- lega faðir barnsins) feltur frá eða verð- ur öryrki. — Leiiið upplýsinga, látið getið aldurs yðar og hvenœr þér mynd- uð óska útborgunar á liftryggingarfénu. Lífsábyrgðarfélagið THULE h.f. Aðalumboð fyrir ísland: Carl D. Tulinius & Co Austurstr. 14. Rvik. Simi 1730 (2 linur) Það er hagkvæmt að gera kaupin í Kaupfélagi Reykjavíkur.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.