Samtíðin - 01.05.1935, Qupperneq 31

Samtíðin - 01.05.1935, Qupperneq 31
SAMTÍÐIN 29 — Og það eru nú svona helstu rnenn og hreppstjórar. Við þetta svar glaðnaði yfir kon- unni, og hún mælti: — Þú ert þá einn af belsibubbun- um, heillin mín. — Það á að heita svo, Hervör, svaraði bóndi, rogginn mjög, og er þaðan kominn talshátturinn, sem ýmsir kannast við, þó að fáir viðhafi hann nú orðið. Sinn er siður í landi hverju. Fyr á tímum létu ungverskir konungar taka hjólin undan vögnum gesta sinna, til þess að víst væri um það, að þeir kæmust ekki af stað undir eins, og var þetta gert af einskærri gestrisni, og ekkert til spar- að að auka á fagnað gestanna. (American Magazine.) Jón kom inn í búð og sá, hvar glitr- andi krónupeningur lá á gólfinu. Hann skimaði í kringum sig til þess að ganga úr skugga um, að enginn tæki eftir neinu, tók síðan upp vasa- klútinn sinn og lét hann detta ofan á peninginn. Því næst laut hann niður og ætlaði að taka hvorttveggja upp, klútinn og peninginn. En peningur- inn loddi við gólfið og Jón rétti úr sér í flýti, af því að hann varð þess var, að búðarmaðurinn var að koma til hans. — Jæja, mælti búðarmaðurinn brosandi, — fyrst þér eruð nú búinn að ganga úr skugga um, hve límið okkar er gott, þá hefðuð þér sjálf- sagt ekkert á móti því að kaupa eina krukku af því til frekari fullvissu. NON ODEUR er besia meðalið við sviia. Láiið yður aldrei vania AMANTI NON ODEUR sérstaklega nú í sumarbiianum. Fæsi víða. Heildsölubirgðir: H. Ólafsson & Bernhöfl. Prentmyndagerðin Ólafur Hvanndal Mjóstræti 6 — Sirai 4003 Reykjavík BÝR TIL: mynclamót fyrir prentun af hvaða tagi sem er og i allskonar litum. Myndamót fyrir litprentun. Myndamót úr eir og zinki.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.