Samtíðin - 01.03.1940, Síða 8
4
SAMTÍÐIN
Frá fiskvagni til fiskhallar
Viðtal við STEINGRÍM MAGNÚSSON fisksala
FiSKSALAN í REYKJAVÍK er
mikill þáttur í dreifing matvæla
til íbúa höfuðstaðaf vors. Oft liefur
verið um það rætt, að fiskdreifingin
þyrfti að komast i betra horf en ver-
ið hefur. Höfuðslaður, sem breytist
á einum mannsaldri úr þorpi í víð-
áttumikla borg, heimtar stórstígar
framfarir á öllum sviðum. Og fram-
farir hafa orðið — einnig á sviði
fisksölunnar. Þegar þeir Jón og
Steingrímur opnuðu Fiskhöllina við
Tryggvagötu 2, 4. júlí s. 1., liefst nýr
áfangi í þessum máhun. Þar fer fisk-
verslunin fram með nútímasniði og
miklum myndarhrag. Á mánudags-
morgnum panta flestar reykvískar
húsfreyjur fisk i matinn, og þá
hringja allir símar Fiskliallarinnar í
iniklum ákafa. En alla daga vikunn-
ar er þar ys og þys mestan hluta
dags. Og það var með lierkjubrögð-
um, að mér tókst á dögunum að
loga Steingrím Magnússon úl úr
Fiskhöllinni (því að þar er aldrei
næði) og eiga við liann eftirfarandi
viðtal.
— Hvað geturðu sagt lesendum
Samtíðarinnar frá fisksölunni i
Reykjavík áður fvr?
— Fyrsta fisksölutorgið, sem ég
man eftir hér í. bæ, segir Steingrím-
ur, — var vestan undir liúsi Eim-
skipafélags íslands, andspænis gömlu
Edinborg, sem hrann l!)l(i. Það var
naalarkampur, sem Iiafði verið slétt-
aður, og var trégirðing kringum
Steingr. Magnússon
liann. Að þessum stað láttu allir, sem
seldu fislc, ókeypis aðgang. En oft
var nokkur reipdráttur um besla
staðinn á þessu torgi. Allir vildu
koma sínum fiskvagni á sem bestan
stað.
Hvaðan fenguð þið fiskinn,
sem seldur var á þessu lorgi?
— Aðallega úr útlendum og inn-
lendum togurum, þ. e. a. s. að vor-
og sumarlagi. Togararnir komu
inn á ytri höfnina á öllum
tímum sólarhringsins. Við liöfðum
venjul. gát á þeim frá kl. 4 árd. Þeg-
ar togari sást skríða inn fyrir Engey,
rerum við til móts við hann á létt-
um bát (norskri skektu). Fiskurinn
var síðan boðinn upp í körfum, og
þannig keyptum við liann um borð
í togurunum. Á þessum togurum var