Samtíðin - 01.03.1940, Blaðsíða 28

Samtíðin - 01.03.1940, Blaðsíða 28
24 SAMTÍÐIN IHER FRAKKA eru tveir hers- höfðingjar, sem eru tvíburar. Þeir eru svo líkir, að þegar þeir voru á barnsaldri, áttu foreldrar þeirra örð- ugt með að þekkja þá sundur. Tví- hurar þessir eru að heita má ná- kvæmlega jafnháir og jafnþungir. Þeir veikjast altaf samlímis af sams konar kvillum. Þeir hafa sama smekk báðir og sams konar áliuga- mál. Báðir spila þeir á fiðlu og reykja sömu tegund vindlinga. Við ljurtfararpróf úr herforingjaskólan- um var annar þeirra sá 45., en hinn sá 46. Rithönd þeirra bræðra var þá svo lík, að prófdómandinn, Joffre marskálkur, sá, er síðar gat sér mik- inn orstir í heimsstyrjöldinni, hélt, að hér væru einhver svik í tafli. En tvíburarnir áttu auðvelt með að sanna sakleyrsi silt. Enda þótt annar þeirra bræðra sé foringi í riddaraliðinu, en hinn í fót- gönguliðinu, hefir starfsferill þeirra verið næsta líkur. Þeir voru t. d. háðir gerðir lierforingjar sama dag- inn. Þegar þeir voru 41 árs, kvænt- ust þeir báðir sama dag. Þeir eru eins í öllum háttum, augnaráð þeirra er eins, og sama máli gegnir um hreyfingar þeirra og skapferli. Það er talið, að hið eina, sem aðgreinir þá, auk ólikra einkennisbúninga, sé, að annar þeirra, Théodore Bret, heldur fingrunum saman, þegar hann ber höndina upp að húfunni og heilsar á hermannavísu, en hinn tvíburinn, Félix Bret, heilsar þann- ig, að nokkurt bil er milli litla fing- urs og hinna fingranna. (Úr L’Illustré, Lausanne). LITLA BLÓMABÚÐIN Bankastræti 14. Sími: 4957. • Ávalt smekklegt úrval af alls- konar blómum og krönsum. — Einnig leirvörur, lientugar til tækifærisgjafa. Ráðningastofa Reykjavíknrbæjar Karlmannadeildin: Opin frá kl. 10—12 f. h. og kl. 1—2 e. h. Kvennadeildin: Opin frá kl. 2—5 e. h. Öll aðstoð við ráðningar veitt ón kostnaðar fyrir vinnuveit- endur og atvinnusækjendur. Skifti við Ráðningarstofuna spara atvinnurekendum tíma og peninga og skapa hinum at- vinnulausu ómelanlegt hagræði. Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar Sími: 4966.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.