Samtíðin - 01.02.1942, Síða 23
SAMTÍÐIN
19
kominn á fund Redls liershöfðingja.
Njósnarinn veit allt um hagi hers-
iiöfðingjans, þekkir alla hans snöggu
hletti og hótar að ljósta þegar í stað
upp leyndarmálum hans, nema hann
gerist landráðamaður — sviki föður-
land sitt. Það er hverri þjóð mikils
virði, að embættismenn hennar hafi
hreinan skjöld, þannig að misendis-
menn geti ekki ógnað þeim með af-
hjúpun óþægilegra levndarmála.
Alveg sérstaklega á það við um yfir-
menn í hernaði. Það hefur verið sagt,
að Redl liershöfðingi hafi selt Rúss-
um vitneskjuna um öll hernaðar-
áform Austurríkismanna fyrir heims-
styrjöldina. Slíkt nær vitanlega engiú
átt, því að um þau var honum þá
ekki kunnugt. Það, sem liann sagði
rússnesku njósnurunum, var, hvað
herdeild lians sjálfs ætti að gera, ef
til styrjaldar við Rússa kæmi. Að þvi
loknu var Redl svikinn á þann hátt,
að ódæði hans var Ijóstað upp í nafn-
lausu bréfi, sem yfirmönnum lians
var sent. Þegar hann sá, hvernig
komið var, skaut hann sig, en aust-
urríska Iierforingjaráðið sá sér ekki
annað fært en að gerbreyta áætlun-
um þeim, sem hann hafði ljóstað
upp.
Redl-málið varpar skýru ljósi yfir,
hvers virði það er að hafa skipulagð-
ar njósnarstöðvar. En svo eru til
annars konar njósnarar: ævintýra-
menn með mismikla glæpahneigð,
sem vinna bak við tjöldin i þágu ó-
hlutvandra stjórnmálamanna. Til
þess að kynnasl mikilhæfasla njósn-
ara af þessari tegund, sem sögur fara
af, verðum við að bregða okkur all-
Eíg,á f)á>i tycunícLh. íœ.kah,
sem þér viljið selja? Vitið
þér ekki, að þær eru meira
virði en bankaseðlar. íslenzk-
ar bækur eru öruggasta eign-
in, fegursta heimilisprýðin og
varanlegasta gjöfin. Skiptið
þeini gömlu fyrir nýjar, ef
þér hafið litlar tekjur.
Prýðið heimilin með:
Sögunni af Þuríði formanni,
Álfum kvöldsins, Stjörnum
vorsins, sögu Theodórs Frið-
rikssonar, Eddu Þórbergs, Á
hverfanda hveli.
Það er betri eign en bankaseðlar!
VÉLSMÍÐI
ELDSMÍÐI
MÁLMSTEYPA
SKIPA- OG
VÉLAVIÐGERÐIR