Samtíðin - 01.02.1942, Side 35

Samtíðin - 01.02.1942, Side 35
SAMTÍÐIN 31 ÞEIlt VITItU Nýjar bækur — SÖGÐU: Þó að allar sveitir iandsins væru fylltar af Búkollum, Bárðardalsfé og kynbótafolum, plógum, dráttarvél- um, sláttuvélum, hlöðum og safn- gryfjum, yrði enginn búskapur úr því, ef mannfólkið vantaði til þess að nytja þessi gæði og njóta þsirra. Því er fólksfækkunin í sveitunum sérstakt áhyggjuefni cllum þeim, sem annt er um framtíð landbúnaðarins. „Við- reisn sveitanna“ hlýtur ekki sízt að vera í því fólgin, að leita allra ráða og neyta allra ráða til þess, að fólk u n i sér þar, vilji eins vel vera þar og í bæjunum, vilji helzt fremur vera þar en í bæjunum.-----Enginn, sem kunnugur er íslenzku sveitalífi og gcðu bændafólki, mun ganga þess dulinn, að sjálf lífsbaráttan, útivinna í snertingu við jörðina og í hreinu lofti, áhyggjurnar, sem efla fram- sýni, einangrunin, sem glæðir sjálf- stæði og sjálfstraust, fásinnið, sem glepur ekki einlæga hugsun, hefur íeyft persónuleik margra sveitamanna að ná sérstæðum þroska, sem vekur aðdáun. Og persónulegur þroski hlýt- ur alltaf að vera það eftirsóknarverð- asta í mannlegu lífi. — Sigurður Nor- dal. Hundsins er átján sinnum getið í biblíunni, en köttur er aldrei nefnd- ur þar. — W. E. Farbstein. Ef ég hefði ekki einhvers staðar lesið, að maður megi til með að lifa, meðan nokkrar líkur séu til þess, að hann geti gert eitthvað gott-, mundi ég ekki vera enn á lífi. — Beethoven. Guðm. Böðvarsson: Álfar kvöldsins. Ljóðabók. 92 l)ls. Verð ób. kr. 12.00 Edda Þórberffs Þórðarsonar. Ljóð með skýringum, formála og eftir- móla. 250 bls. Verð ób. kr. 19.00, innb. kr. 24.00. Iiitsafn Jóns Trausta III. (Leysing, Borgir). 494 bls. Verð ób. 24.00, shirting 32.00, í skinni kr. 39.00. Enrile Zola: Nana. Skáldsaga í tveihi binduni. 420 bls. Verð ób. kr. 27.00. Laxdæla með nútíma stafsetningu, útgefin af H. K. Laxness. 276 bls. N'erð ób. kr. 14.00. Rcald Amundsen: Sókn min til heimskántanna. — Jón Eyþórsson þýddi. 204 bls. Verð ób. kr. 24.00. innl). kr. 32.00. Stýrimannaskólinn í Reykjavík 1891 1941. 240 bls. Verð ób. kr. 15.00. Br. Helgi Pjeturss: Framnýall. 342 bls. Verð ób.'kr. 15.00, shirting kr. 20.00, skinnband kr. 25.00. Stefan Zweig: María Stúarl (ævisaga binnar merku skozku drottning- ar. 318 bls. Verð í skinnb. kr. 36,00. Jón Á. Bjarnason: Kennslubók í eðl- isfræði banda unglinga- og gagn- fræðaskólum. 166 bls. Verð íb. kr. 12,00. Allar nýjar isl. ljækur. Pappír, ritföng. Sent gegn póstkröfu um land allt. Bókabúð Máls og menningar Laugaveg 19, Reykjavík. Sími 5055. Pósthólf 392.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.