Samtíðin - 01.02.1942, Qupperneq 29
SAMTÍÐIN
25
Ný Ijóðabók
Guðmundur Böðvarsson:
ÁLFAR KVÖLDSINS. Ljóð.
Bókaútgáfa Heimskringlu -
19U.
Guðmundur BöSvarsson, bóndi á
Kirkjubóli í Hvítársíðu, varð land-
frægt skáld, þegar fvrsta ljóðabók
Iians kom út árið 1936, en hún liét
Kgssti mig sól. Áður liafði hann birt
örfá kvæði í blöðum og tímaritum,
sem vakið höfðu athygli, en Kyssti
mig sól skar úr um framtíð hans
sem skálds, því að þar var hvert
kvæðið öðrn snjallara og hafa fáir
byrjendur farið jafnglæsilega af
stað á seinni árum. Margir urðu til
að ljúka lofsorði á hókina, og har
öllum saman um, að hér væri á
ferðinni sérkennilegt skáld og fág-
að, sem léti ekkert kvæði frá sér
fara, fyrr en það væri samboðið
góðum og vandvirkum listamanni.
Önnur hókin, Hin hvítu skip
(1939), staðfesti enn frekar það á-
lit, sem Guðmundur Böðvarsson
hafði áunnið sér með Kyssti mig
sól, enda er lítið kvæði, samnefnt
bókinni, meðal fegurstu harmljóða,
sem kveðin liafa verið af íslenzkum
nútimaskáldum.
Rétt fvrir jólin kom svo á mark-
aðinn þriðja hók Guðmundar, en
lienni hefur hann gefið nafnið Álf-
ar kvöldsins. Þessir álfar eru 25
kvæði, og hefur Guðmundur aldrei
orl hetur en sum þeirra, þótt ef lil
vill mætti segja um önnur, að hann
hefði flýtt sér lielzl til mikið með
þau.
Bækur
Pappír
Ritföng
EÓKAVERZLUN
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR
Rafmagns-
lagnir
og viðgerðir á tækjurn,
fáið þér hezt unnar á
V/esturgötu 3.
Bræðurnir Ormsson.