Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 18
14 SAMTÍÐIN Og rykið heldur áfram að sitja á hlutunum, og gólfið má ekki ólireinna vera. En livað um þaS. Sá, sem eitt sinn hefur horft á eftir þessari smá- vöxnu, slitnu konu, þar sem hún gengur niSur stigann, finnur, aS í raun og veru kemst hann ekki hjá því aS borga henni tuttugu krónur á mánuSi fyrir dútl, fvrst hún er orS- in of gömul til þess, aS sæmandi geti talizt aS stinga upp í liana súkkulaSi. Annars er þaS lítill og skítugur drengsnáði, sem er hið eiginlega til- efni þessara punkta. Hraustlegt ófeil- ið harn utan af götunni, sem heim- sækir gömlu konuna og situr iðulega á útidyratröppunum, étandi sætar kökur úr kámugum lmefa sinum. Stundum sit ég inni í lierberginu mínu og hlusta á masið í þeim hak- við þilið. Lágan, væran klið, sem minnir á kvak æðarfugls i flæðar- máli. Stundum raular hún fyrir liann vísu. Stundum segir hún honum sögu um lömb og stekk, eða um huldufólk og vatnaskratta. Stundum um herfætta telpu, með ljósa hyrnu, sem vakir vfir túni og horfir á sof- andi lóuna í húmaðri dögg Jóns- messunæturinnar. Þó er það ein gömul þula, sem hún virðist hafa sérstakar mætur á. „Nú skal ég lofa þér að heyra Gils- bakkaþuluna,“ segir gamla konan. Og svo fer hún með alla Gilsbakka- þuluna. Þetta er látlaus þula lítils skáldslcapar, þótt yfir henni hvíli rökkvað skin kolunnar, þar sem góð- leg andlil sveitafólksins birtust í þekkri draumsýn, meðan það rýkur upp úr púnskollunni á borðinu og' amma deilir brauðinu með osti ofan á. En í rauli gömlu konunnar er eins og hver einstök hending sé viðkvæm- ur, rykfallinn dýrgripur, sem hún tekur upp úr kistu sinni og raðar í kringum sig, varfærin, liátíðleg, við rautt kertaljós undir skarsúð. — Og lnin heldur áfram að hvísla nöfn sinna lielgu dóma, kinka að þeim kolli, undrast þá, votta þeim tryggð sína og gleði með fölu brosi á hverri rún andlitsins ásamt léttri snertingu sinna gömlu handa, unz liinn síðasti hlutur er upptalinn og þögnin tekur við, sæt og lilý eins og hinn góði draumur, hin mjúka blekking að baki þess, sem er. Henni hlýtur að þykja mjög vænt um þessa þulu. En hvernig sem á því stendur, þá heyrist hún aldrei fara með hana, nema þegar strákur- inn er inni hjá henni, þótt hún aftur á móti rauii sér visu og vísu, jafnvel brot úr Passiusálmi í einverunni. Ef til vill er það af því, að þess bezta, sem hún á, fær hún ekki notið nema hún geti miðlað því þeim, sem hún elskar. En svo, einn þungbúinn dag, skeð- ur raunalegt atvik: Eg sit inni lijá mér, þegar ég allt i einu veiti því atlivgli, hve rödd gömlu konunnar er orðin heit og innfjálg. „Vertu svolítið lengur, elsku dreng- urinn minn,“ biður hún strákinn. „Nei,“ segir strákurinn. „Æi-jú, elsku barn. Lof mér að raula fyrir þig og gefa þér meira sætabrauð." En þótt srákurinn fái meira sæta- brauð, er hann jafn miskunnarlaus og áður. „Ég fer samt,“ segir hann.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.