Samtíðin - 01.04.1951, Page 26
22
SAMTÍÐIN
Nýjar erlendar bækur
GYLDENDAL í Osló hefur senl
„Samtíðinni“ þessar bækur:
JENS THIIS: LEONARDO DA
VINCI. Höfundur þessarar miklu
bókar andaðist 1942. Hann var einn
af fremstu listfræðingum Norður-
landa á þessari öld og forstöðumaður
listasafnsins í Osló á árunum 1908
—41. Bókin um Leonardo da Vinci
er eitt af höfuðritum hans. Hún er
sannkallað stórvirki, og á bak við
hana eru margra ára rannsóknir í
ýmsum löndum. Bókin kom fyrst
út á norsku árið 1909, en á ensku
1913. I þessari nýju norsku útgáfu,
sem þau Ragna Thiis og Nic. Stang
hafa séð um, er útgáfan frá 1909 að
vísu lögð til grundvallar, en allmiklu
aukið við, sem höf. ritaði seinna um
efnið. Bókin er 322 bls. í stóru broti,
piýdd fjölda mynda ekki einungis af
listaverkum Leonardos, heldur og
ýmissa annarra meistara, einkum frá
endurreisnartímahilinu.
DE 100 BESTE DIKT. Peter
Magnus valdi kvæðin. Að velja 100
„beztu kvæði“ úr bókmenntum þjóð-
ar frá elztu tíð til okkar daga, er
vitanlega engum manni fært, jafn-
vel þótt þjóðin öll hafi lagt honum
lið, livað geymslu og gleymsku
snertir. P. Magnus virðist hafa unn-
ið samvizkulega að valinu í þessa
l)ók, livað svo sem Islendingar kunna
að hugsa, þegar þeir sjá, að hún
hefst á útdrætti úr Völuspá (í norskri
þýðingu). En þegar á það er litið,
hve fátæklegar norskar bókmenntir
eru allt fram á 19. öld, verður skilj-
anlegt, þótt seilzt sé til þess, sem
BYGGINGARVÖRUR
Jafnan fyrirliggjandi
MiðstöSvarofnar
MiðstöSvarkatlar
Pípur, svartar og galv.
Fittings
Skólprör
Hreinlætistæki
Þakpappi
Vírnet
Veggflísar
Gólfflísar
Speglar
Hillur og fleira í baðherbergi
A. J0HANNSS0N & SMITK H.F.
Sími 4616. Bergstaðastræti 52.