Samtíðin - 01.11.1958, Page 24
20
SAMTÍÐIN
mannfólkið og valda um leið mikl-
um truflunum héðra og þaðra. Enda
þótt bókvit og stofuspeki hins aldraða
höfundar móti þetta elliverk hans
fullmikið, ber ekki að neita hinu, að
sviðsetning þess, gamansemi, ádeila
og háð er svo markvisst og mennskt,
að sagan er enn í gildi. Og Magnús
Ásgeirsson átti sér þann fágæta hæfi-
leika að ráða við tungumál, sem liann
hafði hvorki lært að tala né hugsa á.
Hann stóðst þvi þá raun að snara
gerningamærð Parísarfagurfræðings-
ins á íslenzku, sem vart sést blettur
eða hrukka á. Hvað gátu menn ekki
í þá daga eftir 10—15 frönskutíma
hjá Sigurjóni Markússyni?
Pétur G. Guðmundsson fjölritaði
„Uppreisn englanna“ 1927 og kostaði
útgáfuna. Bókin hefur sennilega selzt
fljótt upp, enda um nýstárlega út-
gáfu að ræða. Nú hefur Helgafell lát-
ið prenta þýðingu Magnúsar óbreytta,
og munu margirverða til að styttasér
nokkrar kvöldstundir við lestur lienn-
ar og njóta um leið andrúmslofts
Parísar í grennd við bókakassa vinstri
Signubakkans.
S. Sk.
„Eg er voða hrædd um, að eitthvaS
sé að manninum mínum; hann blæs
alltaf reyk út um nefið.“
„Það er nú algengt, að menn spúi
reyknum út um nefið.“
„Já, lælcnir, en hann reykir ekki.“
Leitið upplýsinga um vátryggingu hjá
Nordisk Brandforsikring A/S.
Aðalumboð á íslandi, Vesturgötu 7.
Reykjavík. Sími 13569. Pósthólf 1013.
Höfum ávallt fyrirliggjandi
MAX undirföt og náttkjóla.
Davíð S. Jónsson & Co. h.f.
Heildvcrzlun Þingholtsstræti 18.
Reykjavík Sími 24333.