Samtíðin - 01.05.1935, Page 34
32
SAMTÍÐIN
Nýjar íslenskar
bækur.
Eins og oft vill verða á þessum
tíma árs, koma út sárafáar ísl. bæk-
ur, enda er aðaltími íslenskrar bóka-
útgáfu frá því í september og fram til
áramóta. Hin merkasta er án efa Eyr-
byggja saga, útg. af Fornritafélag-
inu, og er hennar minst sérstaklega
á bls. 26 í þessu hefti. Skrá yfir aði’-
ar nýútkomnar bækur bíður því
næsta heftis, sem kemur mjög bráð-
lega út.
II.í. Pípuverksmi&jan,
Simar 2551 — 2751, Reyk.iavik,
frámleiðir:
Allskonar Steinsteypuvörur,
Einangrunarplötur
úr Islenskum vikur,
Einangrunarplötur
úr frauðsteypu,
Gipslista og Rósettur,
Steypuasfalt
ú flöt þök og veggsvalir.
Elit gólfhúðun,
Arina,
bœði fgrir rafmagn og eldsneyti.
Skrítlur.
Tvær stúlkur hittust á götu.
— Ég er að heyra það, að þú sért
hætt við hann Bensa, sagði önnur.
— Já, svei mér þá, elsku góða.
Hann var orðinn svo óþolinmóður.
Hann fann að því, hvernig ég var
klædd, skeit vini mína út, og vildi láta
mig sitja og standa alveg eins og hon-
um þóknaðist. Svo þegar minst von-
um varði, rauk hann til og giftist
annari, og þá ákvað ég satt að segja
að segja skilið við hann fyrir fult
og alt.
Frúin (sem er búin að reka stúlku
úr vistinni): Ekld veit ég, hvað ég
á að segja, ef einhver spyr mig, hvers
vegna ég hafi rekið yður.
Stúlkan: Segið þér bara: „Nú er
ég álveg búin að gleyma, af hverju
ég lét þessa stúlku fara“.
Móðirin: Það voru tvö epli í mat-
arskápnum í morgun, en nú er ekki
nema eitt eftir. Hvernig stendur á
því?
Sonurinn: Það var svo skuggsýnt
í búrinu, að ég sá ekki nema annað.
Vinkona: Ég sé að þú hefur fengið
bréf frá manninum þínum.
Frúin: — Já, hann sendi mér tvær
nálar, sem ég átti að þræða fyrir
hann. Hann er nefnilega í sumar-
fríi uppi í sveit og verður að hugsa
um fötin sín sjálfur.
SAMTÍÐIN kemur út 10 sinnum á ári, mánaöarlega nema f janúar og' ágústmánuöi.
Verð 5 kr. árgangurinn, er greiðist fyrirfram. Áskrift getur byrjað hvenær sem er á
árinu. Eigandi og' útgefandi: E. P. Briem, Austurstræti 1, Keykjavík. Ritstjóri: SigurSur
Skúlason, mag. art. AfgreiSsla og innlleimta: Austurstræti 1, sfmi 1336 (2 lfnur). Póst-
utanáskrift: Samtföin, Pósthólf 607, Reykjavfk. — FrentaS í ísafoldarprentsmiðju h.f-